Það er kominn föstudagur...loksins
Ég er búin að vera í einu stress kasti þessa vikuna, er á námskeiði sem heitir listin að kenna tónmenntir...búið að vera rosa gaman, en við höfum þurft að kenna litlum krökkum líka ásamt því að horfa á kennslu...maður hefur svo sem ekkert nema gott af því, í dag er síðasti dagurinn í námskeiðinu og verður bara rólegur.
Á morgun er laugardagur og þá verð ég stór...well, ég er kannski ekkert rosa stór og á líklega ekkert eftir að stækka, en ég verð allavega árinu eldri...tíminn líður alveg á ógnarhraða....stundum finnst mér eins og maður sé búinn að svífa í gegnum árin án þess að taka eftir þeim...allavega síðustu ár! En á morgun verður farið út að borða með góðu fólki, verður fámennt en auðvitað góðmennt...það verður æðislegt, hlakka rosa mikið til.
Er að fara í sund núna og svo er það skólinn......svo bara aflslöppun...er í fríi á morgun, fyrsta laugardagsfríið mitt í einn og hálfan mánuð að ég held :)
Svo er ég loksins búin að setja allar myndirnar mínar á disk, á nú samt eftir að fara yfir þær og ákveða hvað ég ætla að framkalla og svo set ég kannski nokkrar nýjar myndir hér inn ;)
Hafið góðan dag og endilega farið í sund....það er allra meina bót :)



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home