Lífið er!

Eða hvað!!!!

þriðjudagur, október 10, 2006

Loksins myndir

Hvurslags eiginlega, mín bara dugleg, ég setti inn alveg þónokkuð af nýjum myndum. En rosalega getur þetta verið leiðinlegt, það tekur svo langan tíma að setja inn myndir og svo þegar ég var að skoða diskana mína, sem ég setti allar myndirnar mínar á, þá var einn diskurinn bara tómur og helmingurinn að öðrum disk kom ekki inn, ég er ekki svo þolinmóð að geta staðið í svona, ég get svarið það....langaði að öskra! En náði samt að setja inn nokkrar myndir, þarf bara að eyða meiri tíma í að laga þetta á diskunum mínum.

Annars er allt gott að frétta, ég átti alveg fínasta afmælisdag, góðir vinir og góður matur...getur ekki verið betra ;)

Ég ætla að láta þetta nægja í dag,

Kveðja Heiða

4 Comments:

  • At 8:47 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Sæl Heiða mín og til hamingju með daginn um daginn, vissi ekki af honum fyrr en eftir á :( Gott að heyra að hann var góður, og hef heyrt að þú sért still as beautiful as ever...batnar bara hef ég heyrt.
    Við verðum að fara að hittast, nema að þú sért upptekin við þessar ungu eins og sumir...*hóst, Gulli, hóst*

     
  • At 12:56 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Það er satt, hún fríkkar með hverju árinu sem líður

     
  • At 9:07 f.h., Blogger Heiða said…

    Og hver var að ljúga þessu að þér Eva mín??????
    Svo verðum við að hittast :)

     
  • At 3:06 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Takk fyrir síðast Heiða mín, þetta var rosa fínt!
    Farðu svo að bloggast...

     

Skrifa ummæli

<< Home