Lífið er!

Eða hvað!!!!

mánudagur, desember 25, 2006

Gleðileg jól

Jæja, ekki tókst mér að verða góð í bakinu fyrir jól...ég get ekki lyft neinu þungu og ef ég rekst í eitthvað eða fæ einhvern hnykk þá finn ég rosa til í bakinu og meira segja þarf að berjast fyrir andanum! á enn erfitt með að sofa....glatað!

en annars byrja jólin voða vel....fékk besta svínakjöt í heimi í gær.....kjötið bráðnaði í munninum, og í kvöld er afgangurinn....ég get ekki beðið....svo er það jólaboð á morgun þar sem hangikjöt er á boðstólnum!

Ég var í pottinum áðan og núna er ég algjörlega dösuð...langar helst að sofna aðeins.....reyndar eru flestir á heimilinu í hvíld núna...

allavega - Gleðileg jól allir saman og njótið þess að vera á lífi.....svo finnst mér að allir Hvergerðingar, gamlir og nýjir ættu að skella sér á Sölvakvöld.....veit því miður ekki alveg hvaða dag það er....en samt allir að mæta

Knús og kossar
Heiða

1 Comments:

  • At 6:47 e.h., Blogger Sunshine ;) said…

    Gleðileg jólin elsku dúllan mín :) og takk fyrir kortið...
    vona að þú hafir fengið jóla-mms-ið mitt!!
    hafðu það gott.. ;oP
    knús og kossar ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home