meira vesenið þessa vikuna!
Loks er ég búin að heyra í þessu blessuðu blásurum sem ég á að syngja með...þó að það er alltaf vesen hvenær maður á að hitta þetta fólk...svo heyrir maður ekkert meira og veit varla hvað var ákveðið! Jæja á allavega að hitta þetta fólk í kvöld klukkan átta...held ég...fyrst var það sjö svo sex og svo átta þannig að ég veit ekkert hvað er rétt...kemur líklega í ljós! Ætla svo að kíkja á dubliners á st.patriksday stemningu...þó svo að ég drekki náttúrulega ekki bjór...ohhh well, verð bara að fá mér eitthvað annað!
Svo er ég alveg næstum því búin að kaupa mér digital myndavél...Rósi bróðir er að fara út til London í dag og ætlaði að kíkja á þessar vélar í fríhöfninni fyrir mig...þá kannski fáið þið að sjá fleiri myndir hjá mér! svo mikið vesen að þurfa að skanna þær inn og svoleiðis...sérstaklega þar sem ég á ekki skanna!
Ég er farin að hlakka rosa til sumarsins...það verður sko fjör þetta sumarið...ætla að fara að rafta og í leiðinni að keyra kringum landið með henni Lilju minni...vera bara með tjald og skoða þetta land okkar sem maður veit í rauninni ekkert um! Svo er það náttúrulega Þjóðhátíð...ætla sko ekki að sleppa henni þetta árið...hef ekki farið núna í tvö ár og ég er komin með fráhvarfseinkenni...ég fer líka í tvö brúðkaup og fæ að syngja í einu þeirra....alltaf gaman þegar vinir leyfa manni að syngja fyrir þá!
Það verður langur dagur í dag....fer í skólann klukkan þrjú og verð búin þar um níu leytið í kvöld..því líkt og annað eins....þarf líka að skila inn öllum skírteinunum frá öllum skólunum sem ég hef verið í til listaháskólans. Þarf svo að fara í stöðupróf á laugardaginn...klukkan níu um morguninn...þetta má náttúrulega ekki.....svo þarf ég að syngja um kvöldið....alltaf mikið að gera..
well hafið það gott í dag...ding dong dei



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home