Lífið er!

Eða hvað!!!!

fimmtudagur, maí 13, 2004

Þá er undankeppnin liðin....og ég verð að segja að ég er mjög svo svekkt, ég hafði að vísu rétt fyrir mér um helminginn af lögunum sem komust áfram....en hvað í andsk...... var fólk að pæla með því að kjósa Möltu...ég meina það...ég var með æluna upp í kok meðan sú þjóð var á sviðinu...on again off again like a rithm of friends...eða eitthvað svoleiðis..og svo þessar dæturdrottningar óp...ég meina...ojbara...og svo croatia...það var nú meiri hörmungin líka...ég var svo hneiksluð...og Danmörk komst ekki áfram..what the hell..Tómas var æði á sviðinu..fannst litlu hjólaskautarnir æði hjá honum...ég mikið svekkt.. og þar misstum við líka 'Islande douze point' frá Dönum...mikið fúl. En hún Ruslana frá úkraínu komst áfram, ég var þó sátt við það.. en það þýðir ekki að grenja yfir þessu....nú er bara að koma sér í almennilegt stuð fyrir laugardaginn!

Ég er svo að fara að vinna eftir hádegi í dag...fæ að byrja að vinna einum og hálfum degi á undan áætlun...það er nú svei mér fínt...fyrir utan það að það er komið svo gott veður

Þarf svo að fara í bæinn í kvöld á enn eina kóræfinguna...og Lilja mín ég mæti á eftir að sækja spóluna ;)

jæja ég ætla að fara að horfa á Nágranna...jájá ég veit...en ég er hooked og búin að vera það í mörg ár...og Darcy you ass...you're finally busted...ég er svo hamingjusöm!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home