Lífið er!

Eða hvað!!!!

þriðjudagur, desember 14, 2004

Halló halló

Hvað er að frétta?
ég er komin í jólafrí....svaf alveg til ellefu í morgun...hef sjaldan sofið svona lengi, Ég er enn að bíða eftir einkunnum...er að verða brjáluð...maður fær ekki að vita neitt.
Svo er ég búin að syngja svolítið með kór frænda míns...við vorum að syngja í Garðheimum á sunnudaginn...alveg rosa gaman...skrytið að syngja svona í búð, fólk var bara að gera sín innkaup og einn og einn stoppaði til að fylgjast með...en svo þegar ég söng einsönginn minn þá fylltist allt fyrir framan okkur...ég náttúrulega rosa montin ;) Svo er alveg spurning hvort við syngjum í smáralindinni næsta laugardag....en það er ekki víst ennþá!

Svo er bara rólegheit framundan, ég er náttúrulega enn að skúra en annars er ekki mikið að gerast hjá mér.

Já og ég fór í klippingu um daginn...ekki margir sem taka eftir því...en samt er þetta rosa breyting fyrir mig persónulega...hárið er komið í styttur...sem er svo sem ekkert nýtt og svo er búið að þynna það um meira en helming...og nú finnst mér ég ekki hafa hár lengur.....allt þykka hárið farið...eða þannig sko... me´r finnst þetta samt voða flott...ég þarf að vísu að slétta það ansi oft því þegar hárið léttist svona mikið þá fékk það einhverja sprautu í rassinn og krullaðist alveg rosalega upp. En jæja...verð bara að læra að stjórna því.

Lilja mín....til hamingju með myndirnar, þær eru rosa flottar...held að ég verði bara svolítið afbrýðisöm útaf þessum norska...hann er bara nokkuð sætur...svo vildi ég að ég væri þarna með þér...er búin að gráta nóg hérna heima...;)

Have a nice day...ég ætla að njóta þess að vera í fríi.......

3 Comments:

  • At 6:15 e.h., Blogger liljaarn said…

    Ja neinei!! Thydir ekkert ad skaela! Vildi lika ad thu vaerir herna med mer-vid myndum skemmta okkur thokkalega vel! takk fyrir pakkana! Amy vard svaka hneykslud thegar eg sagdist ekki opna tha fyrr en 23. og 24.! Vona ad thinn pakki komist a leidarenda fyrir jol :o)

     
  • At 9:33 e.h., Blogger KSvava said…

    Þú verður að setja inn mynd af nýju klippingunni kona góð svo maður fái nú að sjá :O) Mikið áttu gott að vera í jólafríi, væri alveg til í eitt stk af því, takk fyrir. Ekki gráta dúllan mín, ég veit að það er erfitt að feta í fótspot Lilju og leika bestu vinkonu þína en þú átt mig alltaf að, þó ég sé ekki alltaf nærri... endilega hringdu í mig eða spjallaðu við mig á msn ef þér liggur eitthvað á hjarta.. :O)

    Svo er ein spurning... hvenær ætlarðu að byrja að taka mig í kennslu ;O)

     
  • At 10:15 f.h., Blogger Heiða said…

    ég skal byrja kennsluna bara um leið og ég er búin að koma mér fyrir í reykjavíkinni...verður sem sagt í janúar ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home