Alveg að koma helgi, enn hvað það er gott...hlakka voða mikið til þess að sofa út!
nýjustu fréttir ÉG ER AÐ FARA TIL KRÍTAR, ohh, það verður yndislegt, tvær vikur í sólinni og á ströndinni....ég get ekki beðið!
Ég og Gulli ætlum að skella okkur....ég er bara komin strax í frí í huganum, þarf samt að bíða þar til í lok ágúst!
helgin verður örugglega mjög róleg, ég þarf samt að vera gjaldkeri í grilli hjá hestafélaginu á laugard. Það er svo sem alveg ágætt, fæ góðan grillmat og svoleiðis.
Aftur á móti verður næsta helgi (sko eftir þessa) frekar busy! tvö partý...16. og 17. júní.....hæ hó jibbý jei og jibbý jei!
fór í bíó í gær með Lilju og Kötu, Brad Pitt og Angelina klikka sko ekki, ég get alveg sagt það...
jæja, ég ætla að gera eitthvað að vita svona rétt síðustu mín. þarf svo að fara að skúra...alltaf sama sagan....en það er bara gjaldeyrinn minn
bæjó í bili
Kveðja
Heiða (aðeins búin að missa vitið og týna sjálfri mér og....djí ég ætti að fara að sofa núna....nei kannski ekki.....æi......bæjó)



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home