Lífið er!

Eða hvað!!!!

föstudagur, apríl 22, 2005

Tónleikarnir afstaðnir og óperan eftir!
Tónleikarnir voru fínir...fyrir utan smá texta vandræði...en ég held að ég hafi bara komist ágætlega útúr þeirri vitleysu. Brjálað að gera í óperunni, er að sætta mig við þessa óperu...fæ að gera aðeins meira en í byrjun og fæ að vera stelpa en ekki strákur....þannig að ég er bara sátt! Svo verða allir að mæta....þetta er auglýst í blöðunum (Apótekarinn eftir Haydn) og það er frítt inn...þannig að það er engin afsökun!

Mér datt í hug um daginn að fara á línuskauta...keypti mér fína skauta og tók Valda með mér í smá túr.....en vesenið er að maður þarf að komast niður Hel**** laufskógarbrekkuna fyrst til að geta skautað eitthvað almennilega...og Heiða ákvað að reyna að fljúga niður....sem sagt flaug beint á hausinn og tognaði hrikalega á vinstri hendi...hún er búin að vera alveg ónýt og ég var rosa smart á tónleikunum mínum með hendina bundna....en með bleiku bindi þannig að ég var í stíl ;)

Svo er maður búinn að vera duglegur í bíóinu....ég og Kata erum að verða fastagestir í bíóhúsum landsins....ættum að fara að fá fastakúnna afslátt...hehehehe

Jæja ég ætla að fara að kíkja á tónleika hér í LHÍ

Have a nice weekend

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home