Góðan daginn!
ég er ekki manneskja til þess að vakna svona snemma á morgnanna, ég vakna voða hress og svo um tvö leitið þá er ég alveg að sofna, hrikalegt....vinnan gengur bara fínt hérna upp á Selfossveitum, þó að ég er nú meira að vinna fyrir Árborg þessa dagana, fæ kannski að sökkva tönnunum í nokkra reikninga í dag!
Svo byrja ég að skúra í dag....alltaf þarf maður að taka að sér meiri vinnu, á hverju hausti segi ég að nú ætli ég aldrei að skúra meir...en viti menn...næsta sumar er ég byrjuð með skrúbbinn!
Ég er búin að ákveða að fara til útlanda í sumar, veit ekki alveg hvenær eða hvert en það er nú bara minni háttar mál......hehehe
Svo er ég svona eiginlega búin að ákveða að hætta í listaháskólanum!
maður verður víst að taka ákvörðun svo að nú ætla ég að reyna að gera það. Spurning hvað tekur við, ætli ég fari ekki bara aftur í Tónó og klára framhaldsstigið og taka svo burtfarapróf.....æ...það kemur allt í ljós!
hafið það gott í dag....ég ætla að vinna smá og fá svo dýrindis grill þegar ég kem heim!
hafið það gott í dag



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home