Lífið er!

Eða hvað!!!!

fimmtudagur, apríl 07, 2005

Ferming afstaðin og tónleikar á næsta leyti, allt að gerast...
Tónleikarnir verða 20.apríl, kvíður pínu fyrir því, en það verður bara gaman, þetta verður inntökupróf í söngdeildina þannig að maður verður að standa sig vel, svo verður Apótekarinn frumsýndur í óperunni 29.apríl, allir verða að mæta!
Hitti Kötu í gær, við skelltum okkur á KFC og svo fórum við til hennar ömmu að spila...svolítið fyndið að draga Kötu til ömmu, en við skemmtum okkur bara ágætlega, enduðum svo á Hide and seek í bíó! Alveg ágætis kvöld, Svo er það hryllingsmyndakvöld hjá Tedda og Henrý í kvöld...alltaf gaman að því...þeir eru nú samt ekki enn búnir að fá SAW, en við finnum bara eitthvað annað.

Lilja mín....Njóttu lífsins og ekki hafa of miklar áhyggjur!!!! ;)

Stundum tek ég mig til og fer að hugsa...já ég veit, ekki sniðug hugmynd...en hafið þið einhverntíman viljað fá frí...og þá meina ég frí frá ykkur sjálfum...ég meina maður þarf alltaf að lifa...ef maður fer í frí þá þarf maður samt að lifa á meðan...tíminn stoppar ekki....heldur alltaf áfram og maður getur aldrei tekið pásu. stundum langar mig í frí frá sjálfri mér.

En Njótið dagsins og ekki ofþreyta ykkur því þið getið ekki tekið frí!

1 Comments:

  • At 2:19 e.h., Blogger liljaarn said…

    Hehe! Thetta er nu bara creepy...var akkurat ad hugsa um thetta um daginn-hvad thad vaeri nu fint ad fa fri fra sjalfum ser svona eins og einn dag ;o) Held ad thad vaeri besta fri sem eg gaeti fengid!

     

Skrifa ummæli

<< Home