Lífið er!

Eða hvað!!!!

mánudagur, september 12, 2005

Líður betur í dag

Búin að komast að því að það er ekki hægt að lifa lífinu nema einn dag í einu...helvítis klúður það...en mér líður vel í dag...góður dagur, Kennarinn minn er rosa skylningsríkur og bara fínn dagur....gott að eiga svona daga inn á milli, búin að ákveða það að lifa einn dag í einu og kannski verður lífið ömurlegt á morgun og kannski ekki....en ekki í dag...dagurinn í dag er góður...hef áhyggjur af morgundeginum þegar að honum kemur...Ekki satt?

Var að horfa á King Kong (1933) í dag, þurfti að horfa á hana fyrir Kvikmyndartónlistartímann...rosa fín mynd...svolítið fyndið að horfa á hana :) svolítið augljóst að það er verið að leika við skjá...en auðvitað er þetta 70 ára gömul mynd þannig að þetta er bara cool mynd...verð nú samt að segja að ég vorkenndi greyið apanum.....hann vildi svo sem engum illt.....ja...át nokkra menn, en hvað er það á milli vina :)

1 Comments:

  • At 1:21 e.h., Blogger liljaarn said…

    Segi það nú...grey apinn! Aldrei má maður neitt... ;o)

     

Skrifa ummæli

<< Home