Kasettur.
ég reif upp kasettu kassann minn sem ég var búin að setja niður í kjallara, það er nefninlega kasettutæki í vinnunni og fannst mér þetta alveg upplagt að sjá hvað ég á. Nú sit ég í vinnunni og er að hlusta á Sólstrandargæjana, ég vissi nú ekki einu sinni að ég ætti þetta á spólu...fann þarna fullt af upptökuspólum, Now 23 og Now 25, Madonna og einhver spóla sem Teddi tók upp fyrir mig, veit reyndar ekki hvað er á helmingnum af þessu, en getur verið gaman að skoða þetta, datt meira að segja á eina spólu þar sem ég sjálf var eitthvað að gaula...ég var alltaf að taka sjálfa mig upp á yngri árum...var auðvitað að þykjast vera fræg og svona..Það er nú bara gaman að því.
Svo er ég að fara á Eurovision í kvöld, Það ætti að verða skemmtilegt...fæ að sjá Bobbysocks og svona. Svo fer maður í partý hjá Siggu í kvöld...það ætti að verða gekt fjör eins og fólk segir í dag :)
Ég enda þetta í dag á þessum frægu orðum
Ra**gat, Ra**gat og Pí*a
Ra**gat, Ra**gat og Pí*a
Fá gervitungl í hausinn
Vonandi ekki þú líka
Hei



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home