Lífið er!

Eða hvað!!!!

laugardagur, apríl 08, 2006

Þreyta dauðans

Kíkti á ballið á örkinni í gær, það var nú alveg rosa gaman, strákarnir í svörtum fötum eru alltaf góðir og geðveikt stuð í þeim. Verð nú samt að segja að ég held að maður sé að verða of gamall fyrir þetta, ég meina...mér sjálfri finnst ég ekkert vera of gömul og skemmti mér frábærlega á svona böllum, en aftur á móti þá er eins og maður sé kominn aftur í fjölbraut, ekkert nema 17-18 ára krakkar...fékk nú þann heiður að 18 ára gutti var að reyna við mig...hann var nú ekki lengi að forða sér þegar ég sagði honum hvað ég væri gömul, það var nú eiginlega bara svolítið skondið. Ég sofnaði svo ekki fyrr en um 5 leytið, ekki oft sem ég lifi svo lengi, en í dag er ég allavega hrikalega þreytt og langar bara að kúra upp í rúmi...en þarf auðvitað að vera að vinna! Alltaf sama sagan.

Idolið búið.....Ég hafði lengi vel mínar efasemdir um hann Snorra, en ég held að hann hafi bara alveg átt skilið að vinna þetta, hann var nú bara einfaldlega betri en Ína þetta kvöld.

Ég er búin að klára ritgerðina mína um hann Carl Loewe, loksins. Ég er ekki mikið fyrir það að skrifa ritgerðir, fegin að þetta er búið...þarf bara að hafa áhyggjur af BA ritgerðinni sem ég þarf að skrfa á næsta ári, hlakka ekki til þess.

Well, ég ætla að reyna að komast í gegnum daginn án þess að sofna :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home