Lífið er!

Eða hvað!!!!

þriðjudagur, mars 21, 2006

Jæja, þá er loksins að koma að því

Snúllabar á laugardaginn...allir að mæta, Hitakútur er auðvitað að spila, og auðvitað verð ég á staðnum!

Annars er ekki mikið að frétta af mér, ég er alltaf í bænum núna, svona á meðan amma er í útlöndum, ég verð nú samt að segja að það er alltaf best að búa í Hveragerði, ágætt svo sem að þurfa ekki að keyra á milli á hverjum degi, en Hveró er alltaf best :)

Helgin var rosa fín, fórum í bústað, það var slakað á og étið jello....og kvöldmaturinn á laugardeginum.....vá ég slefa ennþá, rosa góður, nautalundin er alltaf best.

Jæja, ég er farin að læra....Sjáumst á laugardaginn ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home