Jæja, kominn tími til að hætta að dreyma
Föstudagur og ég sit heima hjá Rósa bróðir og er að passa hana Eneu litlu.
Ekki mikið planað fyrir þessa helgi, verð að vinna alla helgina og svo bara...well ég hef ekki hugmynd.
Partýið hjá henni Lilju var algjört æði, rosa stuð.
Vá ég er ekkert smá tóm núna...ætlaði að skrifa eitthvað rosa mikið, en svo bara dettur mér ekkert í hug.
Allavega búin að taka 25 mars frá, Hitakútur er að spila á Snúlla...eins og ég hef alveg örugglega sagt áður...Ég ætla að reyna að draga sem flesta með mér þangað :)
Ég er nú oft að velta íslenskum karlmönnum fyrir mér, mjög furðulegir upp til hópa, hvað er þetta með þá og stelpur...ef einhverjir eru að lesa þetta þá kannski getið þið útskýrt svolítið fyrir mér....ég meina......er einhver þarna úti sem býður stelpum ennþá á deit, eða er það bara alveg búið? Þurfa stelpurnar að sjá um allt sjálfar? Flokkast eitt sms sem hljóðar svona "hæ hvað segir þú" sem boð á deit...eða er ég bara alveg orðin klikkuð...æi...ég skil bara ekki baun.....
Væri ekki æðislegt ef einhver mundi bjóða manni út (ekki með sms) og ekki vera með neitt ands***** vesen?



1 Comments:
At 4:21 e.h.,
Inga Rannveig said…
íslenskir kallar deita ekki... held ég...ég held að ég hafi ekki farið á deit síðan í tíunda bekk...og sá gaur flutti til Bandaríkjanna (ekki sérlega íslenskur í sér) en kannski hef ég bara ekki hitt réttu týpuna ennþá...
Skrifa ummæli
<< Home