Sunnudagur!
Helgin alveg að verða búin. Ég fór á vorfagnað hjá Bootcamp á föstudaginn....það var bara hörku stuð, þurfti svo að vakna klukkan átta daginn eftir og fara að syngja í tveimur fermingum....ohhh það var nú ekki auðvelt...svaf svona þrjá tíma um nóttina og svo var bara erfiði að halda sér vakandi í fermingunum, en allt fór vel...um kvöldið var ég svo að passa Eneu frænku mína og ég mætti þangað með kærkomna pizzu og kók og var svo hálf sofandi allt kvöldið...en nú er ég komin í vinnuna og búin að sofa vel í nótt :)....vildi samt að helgarnar væru einum degi lengur...alltof stutt, maður er loks að ná því að slaka á og losa viku stressið úr sér og þá er allt byrjað aftur! Í kvöld ætlum við Inga og Helga að kíkja á sýningu fjölbrautaskólans, man ekki alveg hvaða stykki það er, en það verður örugglega rosa gaman, ætlum að kíkja fyrst á krúsina og fá okkur að eta!
Ég var að pæla...já ég veit, ég pæli alltof mikið í hlutum sem skipta kannski ekki miklu máli....en þegar maður er svona mikið einn þá er ekki mikið annað að gera en að pæla í hlutunum.
Eiga ekki allir svona "what if" eða "the one who got away" gaur eða gellu, hvað ef að maður og kona sem hugsa svona séu að hugsa um hvort annað...náðu þið þessu? well, ég var að hugsa ef til dæmis minn "who got away" væri að hugsa það sama um mig? Ég gæti skrifað langa ræðu um þetta, en ég ætla nú bara að henda þessari spurningu fram!
Ekki gleyma svo að kíkja á í svörtum fötum á örkinni 7.apríl.....jahérna, það er bara næstu helgi...en allavega, það verður geðveikt stuð...allir að mæta :)
Jæja, ég ætla að fara að borða hrískökuna mína.
Hafið það gott í dag
Kossar og Knús
Heiða



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home