Lífið er!

Eða hvað!!!!

föstudagur, febrúar 24, 2006

Föstudagur!

Það er föstudagur í dag og ég er að vinna.....átti að vera í masterklass hjá einhverjum þýskum óperu dúdd og svo á æfingu fyrir söngleikja tónleikana sem verða á morgun...en ég er að vinna...en það er allt í lagi
Annars eru tónleikarnir á morgun laugardag klukkan þrjú upp í listaháskóla, Sölvhólsgötu...ef þið hafið áhuga á því að mæta...verður rosa fjör.

Verð að segja að ég er búin að vera þreytt í nokkra daga núna...búið að vera brjálað að gera í skólanum og svoleiðis...get ekki beðið eftir því að fá Buffy og Angel seríurnar mínar....þá ætla ég að liggja í leti og glápa á imbann...það getur verið voða gott stundum.

Var að fá nýtt minniskort í myndavélina mína...minniskortið mitt virkaði ekki lengur í myndavélinni...vei ekki afhverju og þeir sem eiga að vita þetta vissu það ekki heldur...það virkaði í öllum öðrum myndavélum.....bara ekki minni...ég get svo svarið það...Þannig að ég keypti nýtt...hafði það stærra og nú á ég minniskort sem virkar ekki hjá mér...en örugglega hjá einhverjum öðrum...þannig að ef ykkur vantar minniskort þá hafið samband við mig ;)

Það hefur nú ekki verið mikið að gerast undanfarið í Hveragerði...vona bara að þeir í Hitakút fari að spila bráðum svo maður getur skemmt sér eitthvað ;) Get þá líka prófað fína nýja minniskortið í vélinni ;)

Hafið það gott um helgina...gangið létt um gleðinnar dyr og allt það
bæjó í bili....ég ætla að detta í draumaheiminn á meðan ekkert er að gera í búðinni.

4 Comments:

  • At 11:23 e.h., Blogger Inga Rannveig said…

    hæhæ þú verður að ná aftur í kóðann á auglýsingunni svo að hún hætti að vera svona tosuð og teygð.
    Það er eiginlega best ef við getum sent þér þetta á emil....hvaða addressu ertu að nota núna??

     
  • At 7:03 e.h., Blogger Heiða said…

    ég nota heidamar@torg.is

     
  • At 2:20 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Þú varst að spyrja hvenær við myndum spila á Snúlls...

    Kúturinn verður á Snúlla 25.mars... verður ekki auglýst strax en þetta er 99,7895% öruggt.

     
  • At 11:38 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Jæja þá vitum við Heiða hvar við verðum þann 25. mars....spurning hvort að við tökum kvennaljómann þ.e. eiginmann þinn og kærastann minn hann Gulla með okkur ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home