Lífið er!

Eða hvað!!!!

föstudagur, júní 09, 2006

Föstudagur

Jæja, loksins kominn föstudagur.....ég byrja að vísu að skúra í dag þannig að ekki fer ég snemma heim...og svo er ég að vinna alla helgina líka...ekki mikið frí hjá mér...en það góða við þessa helgarvinnu er að ég þarf ekki að vakna snemma...þarf ekki að byrja að vinna fyrr en tólf, þannig að ég get þó allavega sofið út...jei...

Það er Kvennareið hjá hestafélaginu á laugardag þannig að eftir vinnu þá þarf ég að leika gjaldkera, það er svo sem ágætt....fæ grillmat að launum :)

Ég er eiginlega komin á það, að ég þarf örugglega að skella mér til sólarlanda allavega í viku í lok ágúst....ég sé fram á það að ég verði svo rosalega uppgefin eftir sumarið.....þá er bara spurningin hvert á að fara...með hverjum og hversu ódýrt það verður :) Get nú ekki byrjað skólaárið drullu þreytt, þá nennir maður nú ekkert að leggja sig fram.
Ég á svo sem engan pening...en ég er nú að vinna ansi mikið í sumar...ég ætti að geta skrapað saman smá pening...vonandi.

Jæja...ég ætla að fara að vinna....díla við fúla menn sem vilja ekki láta mig fá teikningar sem mér ber að rukka.....alltaf er hausinn bitinn af greyið ritaranum.

Calimera....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home