Lífið er!

Eða hvað!!!!

miðvikudagur, ágúst 16, 2006

Alveg ótrúlegt hvað það er aldrei hægt að treysta á neitt.....ég pantaði nýjar linsur í kringum 10. júlí og þær eru ekki enn komnar, fyrst týndist pakkinn og svo komu allar linsur....nema auðvitað mínar....þannig að núna geng ég um með gleraugu sem eru með röngum fókuspunkti (var að komast að því) þannig að ég sé ekki mikið þessa dagana....alveg glatað.

Ekki búið að vera mikið að gera þess dagana í vinnunni...sný mér í ótal hringi hérna til að búa til eitthvað að gera. Þetta er nú síðasta vikan go svo byrjar skólinn á mánudaginn...veit ekki hvort er betra...það er þó gott að ég þarf ekki að vakna alltof snemma á meðan ég er í skólanum....það er alltaf gott.

26. ágúst er svo blómstrandi dagar hér í Hveró....ætla sko að mæta á brekkusöng, alltaf gaman að því.

Svo langar mig til þess að flytja....þannig að ef einhver veit um íbúð á ótrúlega lágu verði, þá endilega tala við mig :)

Jæja...ég ætla að fara að ímynda mér verkefni til að vinna hérna

Kveðja

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home