Nú er illt í efni
Ég er að passa það voða vel að fá ekki panic attack!
Ég er ósköp hljóðlát manneskja, vil yfirleitt ekki láta bera mikið á mér og að tala fyrir framan hóp af fólki er eitthvað sem ég vil helst aldrei gera.
Ég var að fá kennsluáætlun fyrir íslensku tónlistarsöguna, 30% af lokaeinkun er þáttaka/umræður í tíma....hvað á að gera við fólk sem vill bara fylgjast með og taka eftir en ekki blaðra fyrir framan aðra...á bara að fella það fólk...ég tala aldrei í tíma og spyr helst ekki spurninga, tala frekar við kennarann eftir tíma í einrúmi, svo er 40% Ritgerð....ok það er allt í lagi, ég meika það...en svo eru 30% sem eftir eru fyrirlestur....hvað djö*** þarf alltaf að láta mann standa og tala...ég hata fyrirlestur og er það ein af ástæðunum sem ég fór EKKI í Háskóla íslands...ykkur finnst þetta kannski ekkert mál og eruð eflaust að hlæja að mér núna, en fyrir mér er þetta versta martröð ever...ég þurfti að halda fyrirlestur í fyrra og hélt að ég mundi deyja...aldrei verið eins stressuð og þar var bara kennarinn og tvær stelpur, sem eru ágætis vinkonur mínar, að hlusta....
ég ætla að reyna að fá aftur lit í andlitið...svolítið hvít núna og kannski troða kökkinum sem er í hálsinum aftur niður í maga......



1 Comments:
At 11:14 f.h.,
Helga said…
Veistu dúllan mín ég hef fulla trú á þér og ég veit að þú getur þetta... hei mér tókst þetta meira að segja nokkrum sinnum og þá getur þú það líka... þar sem ég veit að við erum álíka fælnar við þetta báðar... bara muna hvað þú ætlar að segja í aðal atriðum og láta það vaða... og það er allt í lagi að maður hiki aðeins það sýnir bara að þú villt gera þetta vel... ég skal senda þér góðar hugsanir í allan vetur...
ekkert vera að stressa þig á þessu og skemmtu þér vel á Blómstrandi dögum í Hveró... vildi að ég gæti verið þar líka...
knús og kossar
frá skötuhjúunum í litla húsinu við hliðina á Hreðarvatnsskála..
Ps. endinlega líttu við ef þú átt leið um Borgarfjörðinn
Skrifa ummæli
<< Home