Bloggleti!
Ég held bara að allir séu komnir í bloggdvala....allir bara hættir...well, ég er ekki hætt...ekki enn allavega,
Maður veit svo sem aldrei hversu margir lesa þetta....það skiptir svo sem ekki mestu máli.
Nú er alveg að koma löng helgi...ég er að vona að skrifstofunni verði bara lokað á hádegi á morgun....svo verð ég að vinna á laugardaginn og fer svo beint upp á völl og flýg til Akureyrar, þegar þangað er komið ætlum við fjölskyldan að fara beint á greifann og vonumst eftir borði þar....gott að fá gott að borða.
Ég er eitthvað svo dösuð núna....þreytt, með hausverk....getur það verið....Væri alveg til í að liggja upp í rúmi í dag, glápa á imbann.....well, það er ekki hægt að hugsa svona....en ég meina...eins og er, þá er akkúrat ekkert að gera hérna í vinnunni, verð að búa mér til verkefni svo ég deyji ekki úr leiðindum...svo stundum er svo mikið að gera að maður getur varla stoppað til að anda....afhverju getur ekki verið bara svona jafn mikið að gera....ohhh.....
jæja...ég ætla að gera....uhhh...eitthvað, það er allavega betra en ekkert ;)



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home