Enn ein vikan að hefjast....Ég fór á Passion of the christ í gær...og ég verð að segja að hún var rosalega góð....mikið ofbeldi og hún er mikið ógeðsleg....ég grét og grét og mundi ekki vilja sjá hana aftur í bráðina....en hún er rosalega góð, vel leikin og vel gerð! ég veit ekki hvað allir eru að kvarta yfir þessari mynd...ég get ekki séð betur en að hann Mel Gibson fari mjög vel eftir sögunni og er ekki að búa neitt til....ef Gyðingar eru eitthvað ósáttir þá eiga þeir að snúa kvörtunum sínum til biblíunnar en ekki kvikmynd sem segir nákvæmlega það sem biblían segir...satan var flottur...ekki kona og ekki karl...ekki með kvenlega rödd og ekki heldur með karmannlega rödd....mjög smekkleg....ég er sátt....en ekki fara með krakka á þessa mynd....því hún er virkilega ógeðsleg!
Ég hitti líka gamla vinkonu í bíóinu...hana Anítu...hún lítur ekkert smá vel út...búin að fara í aðgerð og er að halda sér í formi...Ég er rosalega ánægð með hana...ég fékk að sjokk þegar ég sá hana...ekkert smá búin að breytast....
Í dag er það lærdómurinn sem tekur öll völd....verð víst að vera dugleg...þarf að fara í fullt af prófum um næstu helgi, ef ég ætla að komast í þennan listaháskóla



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home