Lífið er!

Eða hvað!!!!

föstudagur, desember 31, 2004

Jæja...þá fer nýtt ár að ganga í garð og það gamla kveður...mér líkar alltaf vel við áramót...þá byrjar allt upp á nýtt...ekki það að ég setji mér einhver áramótaheit..ég fer hvort sem er ekkert eftir því...en með nýju ári getur eitthvað spennandi gerst, og hver veit nema að eitthvað sé nú þegar byrjað ;)
Maður á alltaf að halda í vonina og bjartsýnina...ef maður gerir það ekki hversu gaman er þá að lifa! Njóta lífsins og hafa hugann opinn!

Það er nú ýmislegt að gerast í mínu lífi...ég er að flytja aftur í bæinn og ætla að prófa að búa alein...það verður skrýtið...en gaman að prófa það! Svo gæti verið að eitthvað annað spennandi sé í aðsigi...en ekki meira um það!

Njótið áramótana og ekki láta veðrið hafa nein áhrif...skítt með veðrið segi ég nú bara, og svo sjáumst við hress á nýju ári...

Lilja mín...ég hugsa til þín og sendi þér áramótakveðjur á miðnætti...

eina áramótaheitið sem ég ætla að setja er að brosa meira og þið öll ættuð að gera hið sama.....

Ein í góðu skapi segir

GLEÐILEGT NÝTT ÁR OG TAKK FYRIR ÞAÐ GAMLA

1 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home