Lífið er!

Eða hvað!!!!

miðvikudagur, janúar 12, 2005

jæja...þá er ég flutt og líður bara alveg ágætlega...er búin að eyða ógeðslega miklum pening sem ég á ekki og veit ekki hvernig ég á að lifa árið af en það er allt annar handleggur.

Er í Hveró núna...bíllinn minn er í viðgerð...vonandi það síðasta og svo fer ég aftur í bæinn...skólinn er byrjaður aftur, maður þarf sem sagt að fara að gera eitthvað af viti,

svo var ég að pæla í því að hafa opið hús á föstudagskvöldið, ekkert merkilegt, bara þeir sem vilja koma í heimsókn mega koma og það verður snakk á boðstólnum en ekkert vott...ef þið skiljið hvað ég meina...þannig að ef þið vilja kíkja á föstudagskvöldið í smá hóf þá er ykkur velkomið að mæta ;)

1 Comments:

  • At 12:44 e.h., Blogger KSvava said…

    Hmmm hlakka voðalega til að kikja a þig i kvöld en mig vantar eiginlega heimilisfang svo eg viti hvert eg eigi að kikja a þig :)

     

Skrifa ummæli

<< Home