Jæja...loks komst ég í tölvu...maður er alveg vængbrotinn þegar maður er ekki nettengdur, En hún Enea frænka mín er veik og ég bauðst til þess að passa hana í dag...hún er nú meiri dúllan. En annars er svo sem ekkert mikið að frétta af mér...ég var veik alla helgina....alveg hrikalegt að vera veikur og vera bara einn heima...enginn hringir og maður finnst maður alveg skilinn eftir af heiminum, maður vill bara hafa einhvern nálægan þegar maður er veikur...mamma mín hringdi í mig og hún fékk fyrirlestur um það hvað öllum væri sama um mig....en svona er maður þegar maður er veikur...maður vill láta einhvern vafstra í kringum sig og það er bara erfitt að vera einn...var líka svona þegar ég fékk ælupestina í frakklandi, var voða ein, enginn í húsinu og ég ælandi og grenjandi í næstum því heila viku og hafði engan til að vera hjá mér...það er bara erfitt!
En ég vil þakka ykkur stelpur að koma til mín á föstudaginn...það var voða gott að sjá ykkur.........
jæja...ég verð að halda áfram að læra ef ég á að geta mætt í tíma á morgun....svo verður voða fín helgi...fer heim á föstudag og svo förum við fjölskyldan á Edith piaf á laugardaginn...ætlaði að fara á ball í skólanum...en ég veit ekki hvort ég nenni því...alveg takmarkað hvað maður nennir svona einn...Lilja mín...þetta er ekki hægt...ég ætti að vera að draga þig með mér á svona hluti...en jæja...
Have fun allir saman og njótið þess að .... well, njótið ykkar bara
Love Heiða



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home