Lífið er!

Eða hvað!!!!

mánudagur, febrúar 21, 2005

Enn ein helgin liðin og ný vika byrjuð...alltaf það sama...ég fór til Hveragerðis um helgina og skellti mér á hestbak...verð nú að segja að ég var frekar hrædd....alveg ótrúlegt hvað það tekur mikinn tíma að byggja upp kjark aftur, ég og pabbi ætlum nú samt að fara á hestanámskeið fljótlega. svo fer að líða að því að bróðir minn fermist, það verður hörku fjör og svo er hinn bróðir minn á leið til Ameríku....asnalegt...aldrei fæ ég að fara með :) ég fór með familíunni á Grillhúsið í gær og svo skelltum við okkur á Ray í bíó...bara hörku góð mynd verð ég að segja, annars er ekki mikið að frétta af mér...ég hangi bara heima mest megnis, læri og er svo í skólanum....ekki mikið líf það...ohh well!

Mig langar alltaf að segja eitthvað rosa merkilegt hérna inni en ég veit samt eiginlega aldrei hvað ég á að segja...alltaf alveg tóm...kannski næst!

bæjó og ekki gleyma að horfa á Surviver í kvöld....ný sería...jeii

1 Comments:

  • At 9:40 e.h., Blogger liljaarn said…

    Og litur ut fyrir ad ætla ad verda spennandi seria lika! Verst ad eg missi af henni :o( En jæja madur fær vist ekki allt sem madur vill!!

     

Skrifa ummæli

<< Home