þá er búið að breyta miðanum...Inga kemur með...Gummi ætlar líka með...þannig að það ætti að verða heljarinnar fjör hjá okkur! Svo lengi sem fólk man að þetta er mín ferð og ég ekki skilin útundan....hehehe nei, nei, það verður voða gaman...Gummi lofaði að stinga sér með mér í öldurnar og við ætlum í rennibrautagarð...þá er ég ánægð ;)
Ohh...ég vildi að það væri ekki svona langt í þetta....það versta við þetta er að loks þegar kemur að þessu þá er sumarið eiginlega búið og ég þarf að mæta í skólann daginn eftir að ég kem heim...buhu! Skóli sucks
Ætla að skella mér á War of the worlds í kvöld (vonandi í lúxus) og svo ætla ég í nudd á morgun...komin tími til þess að þreytan og stressið sé nuddað úr mér,
Helgin verður svo fín....ætla að njóta þess að vera heima...fara í pottinn og grilla! Gulli lofaði að vera með mér...en greyið getur bara horft á pottinn...fer ekki mikið í vatn svona brotinn!
Þú hefur alla mína samúð Gulli minn :)
Svo er alveg spurning hvort fólk vilji ekki koma til mín á laugardagskvöldið og fá sér smá grillmat ;)
Ég hef reynt að hugsa ekki of mikið undanfarið.....held að mér líði ágætlega, en það gæti bara verið dofi....fór næstum yfir um í vor og núna get ég einfalldlega ekki meir þannig að ég er orðin dofin.....það er svo fyndið þegar fólk kemur með töfralausnir og segir að þetta sé ekkert mál....bara redda þessu...já, svona lausnir eru ágætar þegar maður talar um það...en það er bara ekki svo auðvelt að BARA gera hlutina....já já búa bara til pening hér og klára þetta bara þarna og gera þetta bara svona.....málið er bara ekki svo auðvelt...ég veit ekki hversu oft ég hef fengið svona ljósaperu í hausinn og ljósið kviknar og ég tek ákvörðun (sem er ekki svo auðvelt) en það er bara einhver eða eitthvað sem er í vinnu við það að brjóta perurnar mínar....ég á ekki það margar á lager!
En nóg um það...helgin á að verða skemmtileg og hananú!
sjáumst síðar.....



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home