Lífið er!

Eða hvað!!!!

fimmtudagur, júní 16, 2005

Löng helgi framundan...JEIIII

ohhh það verður svo gott að fá svona langa helgi...samt brjálað að gera, er að fara í útskriftarpartý í kvöld og svo er ég boðin í partý á morgun líka. Veit ekki alveg hvað ég ætla að gera á 17. Júní....sjá til hvað er að gerast í Hveró....ekki það að ég búist við miklu...hefur verið frekar dauft síðustu ár. En alltaf er gaman á 17. júní, vil alltaf verða lítil stelpa aftur :) Ég get ekki gert að því en ég elska svona hátíðir þar sem allir brosa, syngja og allir eru bara í rosa góðu skapi, líður þá eins og allt verði kannski bara allt í lagi og ég þarf ekki að hafa áhyggjur lengur....áhyggjurnar koma svo strax daginn eftir en svona rétt á meðan þá líður mér rosa vel ;)

Ég ætla að skemmta mér vel um helgina og ég bið ykkur um að gera hið sama...eins og hún Píla Pína sagði einhverntíman:

"dansið og verið glöð, etið og verið glöð, syngið og verið glöð"

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home