djísus
Svaf svo yfir mig í morgun, vaknaði 7.20....hrikalegt...þá var bara að drífa sig í föt og hlaupa út....það er svo vont að vakna svona seint....maður er alveg ónýtur lengi á eftir.
En nú er fólkið á heimilinu komin heim...rosa brún. Ég fékks svona hálsmen með nafninu mínu...:) hef aldrei átt svoleiðis áður, svo er mamma svo mikið að hugsa um krítar ferðina mína svo hún var í því að kaupa boli handa mér sem ég gæti notað úti.
Svo á að vera Stuðmannaball á Hótelinu á Selfossi í kvöld...held ég...upplýsingarnar sem maður fær eru ekki alltaf mjög góðar, vil helst komast...langt síðan að maður hefur farið á ball á Hótelinu, góðar minningar þaðan :)
Ég ætla að reyna að vakna....ég er alveg eins og asni hérna núna...get varla opnað augun rétt!



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home