Lífið er!

Eða hvað!!!!

sunnudagur, febrúar 19, 2006

Eurovision!

Jæja, þá eru þessi ósköp liðin...Silvía Nótt fer til Aþenu, ég ætla nú ekki að tjá mig neitt mikið um það...það kemur bara í ljós hvernig þetta allt saman fer...en aftur á móti er svolítið rosalegt að skoða hvað fólk er að tala um í eurovision heiminum....á esctoday.com er fólk svo mikið að tjá sig að það voru heilar átta síður með kommentum um sigur Silvíu, annað hvort elska fólk hana eða hatar og segja þá að ísland sé að niðurlægja keppnina sem og Ísland sjálft....og ég verð að segja að það eru fleiri neikvæðir en jákvæðir....þetta er nú akkúrat það sem ég var hrædd um, að fólk muni ekki skilja og einfaldlega finnast þetta bara ekkert fyndið.

En þjóðir hafa nú komist langt á gríni í þessari keppni.....vinna náttúrulega aldrei, en what ever!

Það er svolítið sárt þegar sumir evrópubúar eru að kommenta að þessi keppni sé fyrir alvöru tónlistarmenn en ekki svona crap....þar sem einn færasti tónlistarmaður íslands samdi þetta blessaða lag.

Ég gef þessu alveg séns, en ég verð að segja að ég er pínu áhyggjufull.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home