Föstudagur
Þá er kominn föstudagur, Get ekki sagt að dagurinn byrji vel, fékk hausverk í gær og auðvitað tók ég pillur fyrir því...en það dugði ekki betur en það að ég var með hausverk í alla nótt og núna er ég alveg að farast....ekki mikið einbeitning í augnablikinu.
17.júní á morgun....ætli ég verði ekki bara í Hveragerði þetta árið, get ekki sagt að það sé spennandi, hef aldrei fílað 17.júní í Hveró...ekki mikill metnaður sett í hátíðarhöldin. En Rósi og Edda koma nú örugglega til okkar og Enea litla líka þannig að við förum örugglega bara í pottinn og grillum eða eitthvað.
Ég er nú ekki alveg í besta skapi þennan morguninn, væri alveg til í að dópa mig upp að svefnlyfjum og leggjast undir sæng og sofa í allan dag...þar sem ég svaf nú ekki mikið í nótt, mér tókst nú samt að dreyma í nótt...auðvitað var ég með hausverk í draumnum, en það mátti nú búast við því.
Langar að skrifa miklu meira hér en ég er búin að nota delete takkann svo oft að ég nenni ekki meir...það kemur ekkert rétt út úr mér núna.
Njótið dagsins...ég ætla að gera það svona eftir bestu getu...allavega að þrauka daginn út.
Kveðja.....Ein í kvöl



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home