Roger Waters
Ég skellti mér á tónleika í gær, ég og pabbi kíktum á Roger Waters. Það var ekkert smá geðveikt, það leit samt út fyrir vesen í byrjun....það var ekki opnað fyrr en hálf sjö (átti að opna sex) og maður þurfti að standa í biðröð í grenjandi rigningu og roki...svo var önnur biðröð til að komast inn í salinn....svo klukkan átta þegar sjóið átti að byrja, þá var tilkynnt að þeir ætluðu að bíða í korter eftir einhverju fólki sem gat ekki mætt á réttum tíma....mín orðin vel pirruð og strax illt í löppunum. En svo byrjaði þetta......held að þetta hafi verið flottasta show sem hefur komið til íslands...eldglæringar, stjörnugos og fljúgandi geimfarar...og svo var tjald fyrir ofan hljómsveitina sem sýndi allskonar myndir á meðan....ég tala ekki um gítarleikarana...tveir gítarleikarar sem voru með sóló í kapp...geðveikt, annar þeirra..Dave Kilminster var ekkert nema geðveikur....en sem sagt...flott í alla staði...ég var að drepast í löppunum og bakinu og vil helst ekki standa svona aftur en ég sé alls ekki eftir að hafa farið!
Nú er ég svo þreytt að ég gæti alveg lagst niður á borðið og sofnað...en ég ætla nú ekki að gera það...fer bara snemma að sofa!
Have a nice day...svona loksins þegar það er þurrt úti :)



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home