Lífið er!

Eða hvað!!!!

mánudagur, júlí 25, 2005

Ekkert smá yndisleg helgi!
Það var brunað af stað upp í grímsnes strax eftir vinnu á föstudag, vorum smá hrædd um að þorpið í minniborgum yrði ekki alveg tilbúið.....en það var nú ekki svoleiðis, þeir voru búnir að vera vinna alla nóttina kallarnir og þetta lítur ekkert smá vel út, ekki skaðaði veðrið...rosa sól og steik...en kannski skaðaði hún smá, ég er skað brunnin á öxlunum.....en það var mikið talað, sungið, dansað, etið og drukkið og svo fóru auðvitað allir í pottinn. Verð bara að segja að þetta var bara mjög vel heppnað ættarmót og ég mæli eindregið með minniborgum ef hópar vilja fara saman að hafa gaman :)

Smá sjokk þegar við komum heim...þá var engin kisa inni...við vorum alveg viss um að hafa lokað hana inni, hún fann sér smá rifu á einum glugganum og troðið sér út...því líkt og annað eins....þetta var á annari hæð þannig að hún komst ekki inn aftur...veit ekkert hvað hún var lengi úti...ég fékk náttúrulega áhyggjukast eins og mér er von og vísa..en hún kom svo bara lallandi til baka þegar hún heyrði umgang hjá húsinu :)

Versló næst!
Ætli maður verði bara ekki rólegur...löng helgi og mig langar að fá góða hvíld...þó það sé aldrei að vita hvað maður gerir.

Ótrúlega fyndið, tvær frænkur mínar koma frá Krít sama dag og ég fer út og svo koma Erna frænka og maðurinn hennar til krítar viku eftir að ég fer út þannig að við verðum þar saman í eina viku.....bara fyndið...það verður sko stuð á Krít

Jæja hafið það gott

Heiða

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home