Ég þoli ekki frekjudollur sem halda að þær get vaðið yfir mann á skítugum skónum.
En allavega, ég fór til læknis í gær útaf kjálkanum og læknirinn stakk nál í kjálkann, djöfull var það vont, og svo sagði hann að þetta yrði horfið innan tveggja tíma....guess what, ennþá get ég ekki opnað alveg munninn, þetta virkaði ekki skít...svo þarf maður að borga svona mönnum.
Alveg að koma að ættarmótar helginni.....rosalega á að verða mikið fjör þar...alltaf gaman þegar toppfólk kemur saman. Svo verð ég bara heima um Versló, foreldrarnir þykjast ætla að mála eitthvað...skil ekkert í þessu liði....ef það verður gott veður þá kannski kíkir maður í galtalæk á sunnudeginum...kemur í ljós. Kannski maður skelli sér í golf með pabba....kann svo sem ekkert í golfi og get orðið rosa pirruð þegar það gengur ekkert að hitta kúluna...en gæti samt verið gaman :)
jæja, ég er að pæla í því að fara í mat....



1 Comments:
At 10:48 e.h.,
liljaarn said…
Hummm...hvers konar frekjudolla var þetta? Ora maísbauna dolla eða svona ferskjudolla? Geta verið svo dónalegar...ananas dollurnar eru bestar sko! ;o)
Skrifa ummæli
<< Home