Lífið er!

Eða hvað!!!!

mánudagur, júlí 11, 2005

Ágætis helgi liðin, ekkert mikið gert svo sem, Hitti Lilju aðeins á Krúsinni og kíkti í tívolí í Rvík. En annars ekki mikið um að vera

Alveg ótrúlegt hvað sumir fatta ekki að það sem þeir segja hafa áhrif á aðra! Stundum dettur eitthvað út úr einhverjum og sá hinn sami hugsar ekki meira út í það, áttar sig ekki á því að þessi litlu orð komu upp um hann og skilur eftir sig stórt sár. Maður fer að hugsa sig um hvort maður hefur einhverntíman gert hið sama.... ein lítil setning getur fengið mann til að hugsa marga hluti upp á nýtt!

en ekki meira í bili, bara að halda áfram að vinna :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home