Ég er alveg að deyja
ógeðslega heitt úti og ég er alveg að sofna hérna í vinnunni, langar bara að komast heim...en auðvitað á ég líka eftir að skúra.....reyndi að auka orkuna svona allavega í smá stund með því að fá mér súkkulaði og kók...en ég get sagt ykkur það að það virkar ekki....varð bara ennþá þreyttari...þannig að hálft súkkulaði stykkið endaði í ruslinu.
Svo slitnaði fína ökklabandið sem Helga Enea frænka bjó til handa mér, meira að segja í þrjá parta, verð að ná í skottið á henni til þess að laga það...gengur ekki að hafa það svona.
Svo styttist óðum í Krítarferð...ég orðin svaka spennt...þó að mamma er voða mikið að hræða mig...segir að það verði alltof heitt og ég eigi eftir að brenna og verða pirruð á hitanum og þreytt og bla, bla, bla. Það getur svo sem vel verið að ég eigi eftir að eipa á hitanum...en þá verð ég bara að vera þeim mun meira í sjónum.
"Förum saman í ærlegt sumarfrí og veistu hvað, ég barasta held bara, að það verði ógeðslega gaman"



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home