Já nú líst mér á mína menn
Það nennir náttúrulega enginn að vinna á föstud. fyrir versló þannig að yfir menn mínir hengdu bara miða í rúðuna sem stendur á "lokað frá 12.30 föstudaginn 29. júlí 2005" Settu símanúmer líka ef það eru áríðandi mál sem þarf að bjarga....ja hérna hér.....ég er bara á leiðinni heim í hádeginu ;)
Ekki slæm byrjun á langri helgi
En það er auðvitað einn galli á gjöf Njarðar.....ég er bíllaus og mamma fer ekki heim fyrr en fjögur...hummm...ég byrja á því að skúra..alveg sama þótt fólk sé ennþá vinnandi...skúra bara samt....og svo veit ég ekki alveg hvað ég á að gera...athuga hvort móðir mín vilji ekki taka sér frí líka...hummm....sjáum til hvað gerist.
Við fjölskyldan ætlum upp í bústað eins og ég hef áður sagt...ætlum að vera til hádegis á sunnudag...svo bara heim í heiðardalinn...ég verð samt ein heima á sunnud. kvöldið þannig að ætli ég byrgi mig bara ekki upp með óhollustu af verstu gerð... það er alltaf gott...svona stundum. Það finnst mér allavega :)



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home