Alveg að koma helgi
Ekki mikið að gera í vinnunni núna.....flestir í fríi og enginn nennir að vera að gera eitthvað að viti svona rétt fyrri Versló, fólk sem ætlar út úr bænum eru að undirbúa það eða farin! Ekki mikið að gera í skúringunum heldur...held að þær séu bara tvær að vinna í dag og á morgun....ekki mikið rusl eftir þær...svo er þetta síðustu dagarnir mínir í skúringunum....ágætt að komast heim strax klukkan fjögur. Þó að maður er náttúrulega alltaf í peningavandræðum....æi...þetta hlýtur að reddast...ef allt fer á versta veg þá enda ég bara sem gömul piparjónka sem bý hjá foreldrunum til eilífðar...nei..ætli þau fara ekki að henda mér út bráðum :)
Það er líklegt að við skellum okkur upp í bústað á morgun...veit ekki alveg hversu lengi....Þetta verður svona kveðju ferð...búin að selja bústaðinn og þurfum að sækja dótið okkar....skrítið að vera þarna og ekki eiga neitt í honum, Ingunn er víst eitthvað búin að breyta þarna...síðasta ferðin....já, mjög furðulegt...
Mamma var að tala um að hún mundi vilja láta dreifa öskunni sinni í fossinn sem hún baðar sig alltaf í....ekki verður það gert úr þessu!
Fúllt samt að bústaðurinn endi ekki hjá okkur, Pabbi teiknaði hann þannig að hann á svolítið mikið í honum....Æi, þetta er bara skrýtið...margar góðar minningar þaðan :)
Nú er stóri bróðir minn að verða hollywood stjarna hehehehe
fékk hlutverk sem statisti í Clint Eastwood myndinni...hann er alveg rosa spenntur, hann átti að mæta núna í morgun og máta búninginn (full herklæði) og svo áttu þeir að fara í æfingar í vatni og eitthvað svoleiðis...rosa spennó, ekki slæmt að geta sagst hafa verið í Spielberg og Eastwood mynd :)



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home