Allt í steik
Ég ætla að byrja á því að segja "til hamingju með afmælið um daginn Gummi minn" Stundum getur maður gleymt svona hlutum....SORRY!
En 17.júní var í gær, þetta var svo sem ágætur dagur, ringdi eiginlega ekkert um daginn, ég var nú bara í hveró, ekki beint spennandi....enég fór nú með fjölskyldunni upp í sundlaug....svo fengum við rosa góðan mat um kvöldið...grilluð nautalund...getur ekki orðið betra...
Svo er það dagurinn í dag...ekki eins góður get ég sagt ykkur....Ég kíkti inn á bankalínuna hjá mér og sá að það var kominn inn greiðsluseðill fyrir skólagjöldunum, haldiði að gjöldin hafi ekki hækkað....úr 98 þús á önn upp í 114 þúsund...svo er verið að lengja skólann að auki í báðar áttir....ég er svo komin með nóg af þessum and**** skóla að það hálfa væri nóg....langar svo að segja up yours og hætta bara....en auðvitað er það ekki hægt....ég meina, það er auðvitað hægt...en hvað geri ég þá?
Stundum held ég að ég geti einfaldlega ekki meir...þetta er búið að vera endalaust vesen...úhhhh....ég er bara í frekar vondu skapi akkúrat núna...langar til brjóta eitthvað eða eitthvað....ARGH!!!!!!
Jæja...anda inn...anda út....
Adios í bili



2 Comments:
At 3:31 e.h.,
liljaarn said…
Ég mæli með að brjóta eitthvað... það hjálpar alveg ótrúlega mikið þó ekki sé nema í smástund. En þú ert alveg að hafa þetta honey, það er svo ótrúlega lítið eftir núna! You can do it!!!
At 12:29 e.h.,
Nafnlaus said…
Takk fyrir afmæliskveðjuna...knús
Skrifa ummæli
<< Home