Jahérna hér
Það er naumast að maður bloggar lítið...það er nú reyndar búið að vera brjálað að gera í vinnunni hjá mér...svo er ég byrjuð að skúra og er upp í Heilsuteki um helgar....nenni auðvitað ekki að kíkja í tölvuna þegar ég er loksins heima...vil bara liggja upp í rúmi og ná þreytunni úr mér.
Inga mín....ég ætla að mæta 15.júlí....þar sem þetta er svona snemma þá get ég alveg kíkt á þig...hlakkar rosa til....ég panta eina með öllu nema hráum :)
Ég er að vísu alveg dauðþreytt...það á alls ekki við mig að vera að vinna svona mikið, ég næ ekki að halda uppi orðstír mínum sem sjónvarpsglápari og letidýr af guðs náð....alveg hrikalegt.
Ég vona að ég nenni að kíkja eitthvað í tölvuna heima fljótlega, ég ætla að reyna að setja inn myndir fljótlega.
Annars segi ég TAKK FYRIR MIG...þið eruð öll æði
skjáumst fljótlega
Knús frá mér



3 Comments:
At 5:28 e.h.,
KSvava said…
Ég hef mikið verið að spá í svona vinnuálagi, við erum upp á okkar besta aldur en maður virðist eyða öllum sínum tíma í vinnu og svo að reyna að hvíla sig á milli. Alveg ótrúlegt hvað maður þarf að leggja mikið á sig til að eiga smá pening, vona að þetta lagist bráðum í landinu okkar, manni er farið að langa soldið að eiga líf, þ.e.a.s að lifa því á meðan maður er ungur, í stað þess að enda allt í einu fimmtug og hafa ekkert til að sýna fyrir það.
At 4:05 e.h.,
Nafnlaus said…
Takk fyrir síðast, þetta var frábært. :)
At 3:29 e.h.,
Inga Rannveig said…
frábært ég hlakka ýkt til að sjá þig :)
Skrifa ummæli
<< Home