Lífið er!

Eða hvað!!!!

mánudagur, júlí 17, 2006

Helgin liðin

Helgin fór ekki alveg eins og ég planaði hana....komst ekki í afmælið hjá Ingu...sorry honey....ég bæti þér það upp, ég lofa...býð þér kannski bara út að borða fljótlega :)

Hittum frændfólk okkar frá USA....hef ekki séð Láru frænku í 18 eða 20 ár, fórum með fólkið í bláa lónið í rigningu og roki...en það var nú bara rosa gaman, svo voru börnin sett í pössun og við fórum með Láru og Darrick til Sigga frænda, þar sem var borðað dýrindis læri og svo var ís úr ísbúðinni góðu í eftirrétt, besti ís í heimi segi ég nú bara :)
Svo var spilað og drukkið og borðað jello og farið svo á Óliver eftir miðnætti, ágætis staður....aðeins of troðið samt, maður gat varla hreyft sig, en gaman samt, kvöldið endaði svo með pulsu á bæjarins bestu....bara rosa gott kvöld...er samt enn að drepast í löppunum :)

Svo er það mörkin á morgun...get ekki beðið.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home