Til Hamingju Með Afmælið Inga Mín
Hlakka til að koma á laugardaginn!
Það eru ýmsar pælingar í gangi........
Það eru svo sem alltaf einhverjar pælingar í gangi.....ég ætla nú ekki að hafa einhverjar yfirlýsingar þar sem allt er nú bara ennþá í hausnum á mér.
Einn vetur í BA prófið og þá er eitt ár í kennararéttindin....en það er spurning að geyma það í eitt ár....gera eitthvað annað þarna á milli....ég er með hugmyndir og vona að ég geti framkvæmt þessar hugmyndir....we'll see!
Nú er farið að styttast í það að Ameríkanarnir koma í heimsókn, ég hef ekki séð Láru frænku í 20 ár......það er bara svolítið langur tími verð ég að segja. Ég hef aldrei farið út í heimsókn....að maður skuli ekki nota skyldfólkið meira...en það er víst dýrt að fara til USA þegar maður er fátækur námsmaður :)
Íslandsferðin byrjar á næturlífinu í Reykjavík....við verðum nú að sýna þeim hvernig íslendingar djamma....svo er það þórsmerkur ferðin í næstu viku...jeiii...það er sumarfríið mitt...tveir dagar...en það verður ekki slæmt að eyða þeim í þórsmörk, vona bara að það rigni ekki.
Ég er svo búin að fá flakkarann minn.......Dóri er búinn að setja stargate inn á hann, nú get ég reynt að endurheimta letidýrs statusinn :) algjör nauðsyn.
En meira síðar
Knús
Heiða



1 Comments:
At 2:25 e.h.,
liljaarn said…
Go for it girl :o)
Skrifa ummæli
<< Home