Lífið er!

Eða hvað!!!!

miðvikudagur, mars 23, 2005

Jæja þá er ég loks búin að asnast til þess að setja nýjar myndir inn!

annars er allt fínt að frétta...búin í prófum...var að vinna síðustu þrjá daga...bara fínt í nýju vinnunni...rosa hresst fólk þar og svo er ég núna bara komin í Páskafrí og er að reyna að njóta þess!

Gleðilega páska og ekki éta yfir ykkur af súkkulaði
;)

föstudagur, mars 18, 2005

Jæja...þá er ég formlega orðin geggjuð!

Ég er að fara í próf eftir 40 mínútur og svo er annað próf á morgun....það er búið að vera svo mikið að gera að ég hef varla haft neinn tíma til að læra...í gær og í dag er ég búin að vera að læra fyrir tvö próf í einu....ég er hætt að sjá skýrt og bara farin að babbla við sjálfa mig!

Svo hringdi mamma í mig og sagði að nýji vinnuveitandinn minn vilji fá mig í vinnu á mán, þriðj, og miðvik, hann talaði víst við hann pabba minn...honum hefur ekki enn dottið í hug að hringja beint til mín...ætli ég sé ekki bara svona rosalega scary!

Mikið verð ég samt fegin þegar morgundagurinn er liðinn...hlakka svo rosa til að sjá nýja eurovision lagið sem verður sýnt annað kvöld.....

Því miður tekur alltaf eitthvað annað við þegar eitthvað erfitt er búið þannig að ég held að hvíldin verði skammvinn....en áfram ég jei, jei, jei...mig vantar svona persónulegar klappstýrur...hvernig byrjar þetta alltaf....ready, ok, give me an H, give me an E, give.......oh fuck it.....

jæja ég ætla að fara í próf...ætli ég endi ekki á því að babbla einhverja rússnesku í þessu prófi....geðveikin aðeins að kikka inn

well,
Heiða out!

ohhh ég er svo fyndin...eða hitt þó!

mánudagur, mars 14, 2005

Vá...ekki mikið að gerast á þessari bloggsíðu!

Brjálað að gera hjá mér þessa vikuna, Það er prófvika og svo þarf náttúrulega að troða sem mestu inn á vikuna, Próf+venjulegir tímar+masterklassar og einkatímar hjá Finnskum kennurum...alveg ótrúlegt hvað fólk er sniðugt í þessum skóla, en eftir þessa viku er ég eiginlega komin í páskafrí og allir mínir bóklegu áfangar búnir þessa önnina, þá er loksins hægt að einbeita sér að söngnum...kominn tími til. Rósi, Edda og Enea eru farin til USA svo núna er ég að notfæra mér það að geta notað tölvuna þeirra!

Ég er komin með nýja sumarvinnu, hætt á Elló eftir sjö sumur í vinnu og færi mig á Selfoss, hjá Selfossveitum. Það verður skrýtið að fara að læra eitthvað nýtt.

En, ég ætla að fara að sofa...þarf að fara í próf í fyrramálið...

Wish me luck
bæjó