Lífið er!

Eða hvað!!!!

föstudagur, júlí 28, 2006

Föstudagur enn á ný!

Er að fara á eftir til Keflavíkur til að hitta vesturfarana....þau fara á morgun þannig að maður verður nú að segja bless við liðið :)

Á laugardag ætla ég að hitta hana Ingu og við ætlum að gera okkur glaðan dag...þar sem ég missti af 30 afmælinu þá ætlum við að gera eitthvað skemmtilegt.

Svo ætla ég að skella mér til Akureyrar um Versló, ætla að fljúga þangað á laugardagskvöldinu...ætti að verða skemmtilegt!

Ekki meira í dag......meira seinna ;)
Have fun....og ef einhver ætlar að vera fyrir norðan um versló...endilega látið mig vita :)

Kveðja Heiða

þriðjudagur, júlí 25, 2006

Brjálað að gera

Það var ansi mikið að gerast síðustu viku, fór í þórsmörk með allri fjölskyldunni, útlendingarnir meðtaldir, æðislegt að vanda....mörkin klikkar ekki, það er alveg á hreinu :) svo þegar heim var komið var farið í pottinn og mamma eldaði mat fyrir 18 manns.....á fimmtudeginum var svo farið í Keflavík...á Duus....og þar hittist öll fjölskyldan aftur, á föstudagurinn var svo síðasti dagurinn hand Darrick á landinu, við yngri kynslóðin hittumst hjá Rósa og þar var spilað, drukkið og skemmt sér vel :)

Svo er búið að taka ákvörðun um það að Heilsutekið verður ekki opið á sunnudögum, þannig að ég er hætt að vinna á sunnudögum, sem er ágætt, en það þýðir að ég þarf líklega að vera að vinna alla laugardaga....hummm....

Inga mín.....ætli við verðum ekki að geyma máltíðina þangað til um næstu helgi...vona að það sé í lagi...ég bjalla í þig.
Lilja mín....þú þarft að segja mér allt :)

mánudagur, júlí 17, 2006

Helgin liðin

Helgin fór ekki alveg eins og ég planaði hana....komst ekki í afmælið hjá Ingu...sorry honey....ég bæti þér það upp, ég lofa...býð þér kannski bara út að borða fljótlega :)

Hittum frændfólk okkar frá USA....hef ekki séð Láru frænku í 18 eða 20 ár, fórum með fólkið í bláa lónið í rigningu og roki...en það var nú bara rosa gaman, svo voru börnin sett í pössun og við fórum með Láru og Darrick til Sigga frænda, þar sem var borðað dýrindis læri og svo var ís úr ísbúðinni góðu í eftirrétt, besti ís í heimi segi ég nú bara :)
Svo var spilað og drukkið og borðað jello og farið svo á Óliver eftir miðnætti, ágætis staður....aðeins of troðið samt, maður gat varla hreyft sig, en gaman samt, kvöldið endaði svo með pulsu á bæjarins bestu....bara rosa gott kvöld...er samt enn að drepast í löppunum :)

Svo er það mörkin á morgun...get ekki beðið.

föstudagur, júlí 14, 2006

Alveg að koma helgi

Jæja, þá eru vesturfararnir lentir á íslandi....æðislegt eða þannig að koma úr 30 stiga hita í þetta líka ógeðslega veður.....en maður heldur í vonina...allavega með þriðjudag og miðvikudag....verður nú að vera gott í mörkinni :)

Alveg ótrúlegt að maður þarf bara að hugsa um að plana eitthvað, þá gerist eitthvað sem breytir öllu....sem er auðvitað í lagi....maður verður þá bara að gera hlutina öðruvísi.

Hafiði einhverntíman verið í þöglu stríði.....við einhvern sem ykkur líkar vel við. Ég er svolítið að lenda í því....maður vill ekki stofna til leiðinda og endar þannig með að lenda í stríði án þess að nokkur segi neitt.

Njótið helgarinnar...þó veðrið sé skítt :)

miðvikudagur, júlí 12, 2006

Til Hamingju Með Afmælið Inga Mín
Hlakka til að koma á laugardaginn!



Það eru ýmsar pælingar í gangi........

Það eru svo sem alltaf einhverjar pælingar í gangi.....ég ætla nú ekki að hafa einhverjar yfirlýsingar þar sem allt er nú bara ennþá í hausnum á mér.
Einn vetur í BA prófið og þá er eitt ár í kennararéttindin....en það er spurning að geyma það í eitt ár....gera eitthvað annað þarna á milli....ég er með hugmyndir og vona að ég geti framkvæmt þessar hugmyndir....we'll see!

Nú er farið að styttast í það að Ameríkanarnir koma í heimsókn, ég hef ekki séð Láru frænku í 20 ár......það er bara svolítið langur tími verð ég að segja. Ég hef aldrei farið út í heimsókn....að maður skuli ekki nota skyldfólkið meira...en það er víst dýrt að fara til USA þegar maður er fátækur námsmaður :)
Íslandsferðin byrjar á næturlífinu í Reykjavík....við verðum nú að sýna þeim hvernig íslendingar djamma....svo er það þórsmerkur ferðin í næstu viku...jeiii...það er sumarfríið mitt...tveir dagar...en það verður ekki slæmt að eyða þeim í þórsmörk, vona bara að það rigni ekki.

Ég er svo búin að fá flakkarann minn.......Dóri er búinn að setja stargate inn á hann, nú get ég reynt að endurheimta letidýrs statusinn :) algjör nauðsyn.

En meira síðar
Knús
Heiða

miðvikudagur, júlí 05, 2006

Jahérna hér

Það er naumast að maður bloggar lítið...það er nú reyndar búið að vera brjálað að gera í vinnunni hjá mér...svo er ég byrjuð að skúra og er upp í Heilsuteki um helgar....nenni auðvitað ekki að kíkja í tölvuna þegar ég er loksins heima...vil bara liggja upp í rúmi og ná þreytunni úr mér.

Inga mín....ég ætla að mæta 15.júlí....þar sem þetta er svona snemma þá get ég alveg kíkt á þig...hlakkar rosa til....ég panta eina með öllu nema hráum :)

Ég er að vísu alveg dauðþreytt...það á alls ekki við mig að vera að vinna svona mikið, ég næ ekki að halda uppi orðstír mínum sem sjónvarpsglápari og letidýr af guðs náð....alveg hrikalegt.

Ég vona að ég nenni að kíkja eitthvað í tölvuna heima fljótlega, ég ætla að reyna að setja inn myndir fljótlega.

Annars segi ég TAKK FYRIR MIG...þið eruð öll æði

skjáumst fljótlega
Knús frá mér