Nú er kominn þriðjudagur...Var á æfingu á sígaunabaróninum til miðnættis í gær og verð það aftur í kvöld og á morgun...alltaf brjálað að gera...á fimmtudaginn ætti ég að losna um hálf átta svo....HRYLLINGSKVÖLD HERE I COME.....Fór í inntökupróf í listaháskólann um helgina....kom voða ánægð út, fannst mér hafa gengð rosa vel...smá klikk á fyrsta laginu....en píanóleikarinn var alltaf að ruglast og spilaði bara stundum ekki með...þannig að það var pínu erfitt....svo seinna komst ég að því að mér gékk ekki svo rosalega vel...er ekki þessi performer sem þau eru að leita að....ég meina hvað í ósköpunum eru þau að leita að....en söng kennarinn minn er að reyna að troða mér inn....veit nú samt ekki hvort ég vilji fara í skóla sem ég er troðin inn í en átti ekki skilið að fara.... eins og ég sagði í gær, fuck this!
Eins og þið vitið sem þekkið mig, þá er ég búin að vera ein mjög lengi, þannig að ég er alltaf að líta í kringum mig......og stundum tekur maður eftir fólki sem maður mundi ekki halda að maður mundi nokkurntíman hafa áhuga á....svo er það alltaf strákurinn sem er ekki hægt annað en að taka eftir....þá er spurningin hvað stelpa eins og ég geri....eyði ég athygli minni á hvíta rauðhærða strákinn, sem er rosa hress, skemmtilegur og voða góður strákur eða þann síðhærða dökkhærða sem veit nákvæmlega hvað hann á að segja og hvernig hann á að horfa á stelpu til þess að hún bráðni( og líklegast er hann mjög mikil flagari) eða sleppir maður því alveg að reyna að ná í athygli.....og gefur skít í þetta allt saman....
Ókei...skapið mitt er ekki sem best þessa dagana...en það á eftir að breytast (vonandi)
Pirringur endist ekki að eilífu!





