Lífið er!

Eða hvað!!!!

laugardagur, maí 27, 2006

Jahérna hér!

Nú er mér ekki viðbjargandi!
Það labbaði drengur, sem ég þekki ágætlega, framhjá búðinni minni áðan....úff, mikið rosalega var hann flottur....jæja, mér verður ekki bjargað úr þessu!

Ég ætla að láta hugann reika.........

Kveðja frá mér ;)

föstudagur, maí 26, 2006

´Rósant bróðir minn er sem sagt bílasalinn......ef einhver er í vafa! ;)

þriðjudagur, maí 23, 2006

http://www.sjova.is/files/2006_5_11_sjova%20-%20bilasala%20FELGUR_web.mov

Kíkið hingað, Rósant bróðir minn að leika í auglýsingu....mér tókst auðvitað ekki að setja inn link sem þið getið klikkað á, virkar aldrei neitt....en kíkið á síðuna ;)

sunnudagur, maí 21, 2006

Finnland rúlar

Jæja, kannski kominn tími til að þeir unnu þetta, ég meina, þeir hafa aldrei verið í topp 5. og fengu síðast tólf stig 1977, orðið frekar langt síðan!

Kíkti svo til Siggu eftir eurovision, þar var nú bara rosa kósí, takk fyrir mig Sigga mín :)
Svo gékk eitthvað illa að reyna að fá fólk til að fara á Kidda, þannig að það endaði með því að ég og Gulli fórum bara ein.....það var alveg geggjað á Kidda Rót, Hitakútur var auðvitað í svaka formi og ég verða að segja að ég hef sjaldan skemmt mér eins vel ;)
Takk fyrir mig strákar! Hvernig væri svo að fleiri af ykkur mundi gefa mér knús næst? mér finnst ég alveg eiga það skilið!!!!!

Svo held ég að það sé hrikalegur misskilningur í gangi hér í Hveragerði.....fólk heldur að ég og Gulli séum eitthvað svaka par....well....bara til að kom í veg fyrir frekari misskilning þá erum við Gulli ekki saman, það er greinilega erfitt að eiga vini af hinu kyninu, fólk þarf alltaf að halda að það sé eitthvað meira í gangi! Well, it's not!

En ég er að pæla í því að njóta dagsins....langar að gera eitthvað skemmtilegt í dag....ekki oft sem ég á frí á sunnudegi :)

Jæja...have fun í dag,
kossar og knús frá mér :)

föstudagur, maí 19, 2006

Silvía OUT

Jæja, það fengu íslendingarnir sparkið í rassinn sem ég vissi að mundi koma, verð nú að segja að hún hefði getað gert þetta betur....og heyrðu þið baulið...ég segi bara áfram Romaríó og Pebbe....þeir voru bestir...;)

En það er alltaf hægt að pirra sig á Eurovision....Litháen og Tyrkland áttu sko ekki skilið að komast áfram og greyið Belgía þurfti að sitja eftir....og það var búið að spá þeim sigri....allstaðar.... En nú þarf maður bara að ákveða sig með hverjum maður heldur á laugardaginn!

Svo er það Kiddi Rót á laugardaginn, allir að mæta þangað eftir Eurovision ;) Veit að ég verð þar.
Hitakúts félagar klikka ekki, hvergi betra stuð en hjá þeim :)

ótrúlegt að ég sé ekki í verra skapi.....

Hafið það gott og njótið helgarinnar....veit að ég geri það

miðvikudagur, maí 17, 2006

Þá er Lilja farin til útlanda, skemmtu þér vel í eyðimörkinni og á úlfalda!

Eurovision á morgun, verð að segja að maður er með pínu hnút í maganum...æ..þetta verður bara gaman.

Svo á laugardaginn eftir aðalkeppnina þá er um að gera að kíkja Kidda Rót þar sem Hitakútur er að spila...maður má auðvitað ekki missa af því, alltof langt síðan síðast :)

have fun....ég skrifa meira síðar :)

sunnudagur, maí 14, 2006

Jæja, ég er komin heim frá köben

Fríið bara búið...ekkert skemmtilegt...er búin að vera að vinna alla helgina og svo byrja ég á selfossi á morgun....djís, langar rosalega að fara til sólarlanda í þrjár vikur....liggja bara í leti og gera ekki neitt, Það var rosa gaman í köben en maður verður svo rosalega þreyttur eftir svona borgarferðir, síðasta daginn var ég hætt að finna fyrir löppunum á mér.......en við sáum margt, fórum til dæmis til Malmö...og þrátt fyrir yfirlýsingar frá mér þá keyrði ég frá miðborg malmö til miðborgar kaupmannahafnar....fannst ég vera rosa dugleg!

Annars er alltaf verið að bögga mann með skólann, þarf að fara að velja fyrir næstu önn, en það er búið að breyta kennsluskránni þannig að ég á allt í einu miklu meira eftir en ég hélt....verð að reyna að tala við konu ræksnið um það og svo vill þetta fólk leyfa mér að fá allt sem þeir í söngdeildinni fá og vilja að ég láti sönginn og allt það ganga fyrir kennslunni (tónmennta kennslunni) þó að ég sé á kennslubraut en þau vilja samt ekki leyfa mér að útskrifast af söngbrautinni....alveg hætt að skilja nokkurn skapaðan hlut þegar kemur að þessum blessaða skóla.

Jæja....ég ætla að pirra mig á þessu í friði....

Hafið það gott í dag