Lífið er!

Eða hvað!!!!

laugardagur, ágúst 28, 2004

Jæja, þá er Lilja litla farin til Kanada!
Rosalega skrítið að geta ekki hringt til hennar þegar mér dettur það í hug. Vonandi gengur þér vel þarna úti og vertu dugleg að hafa samband!!!!

Ég fór í berjamó í gær...hef ekki gert það í mörg ár!

Svo er ég búin að fara á nýnema kynningu hjá Listaháskólanum....Byrja svo á mánudaginn, fékk kennarann sem ég vildi...þannig að þetta verður örugglega allt í lagi!

Have a nice weekend

laugardagur, ágúst 21, 2004

Þetta fer nú bara að líta út eins og obsession!
Ég dreymi alltaf sama gaurinn aftur og aftur...ég meina...þetta er hætt að vera fyndið!

föstudagur, ágúst 20, 2004

Þá er ég búin að setja inn myndir af þjóðhátíð og Dinnerinum fyrir Lilju!

Þá er menningarnótt á næstu grösum...ætli maður kíki ekki í bæinn.
Ég fór á Catwoman í gær...alveg ágætis skemmtun en frekar ýkt. Það var frekar hallærislegt þegar hún var að purra og mala...þó hún hvæsti aðeins betur ;)
Fór svo líka á Stepford wifes um daginn...varð fyrir vonbrigðum með hana! hún var svo sem ágæt skemmtun en bara svona vídeó mynd! Það þarf að fara að koma almennileg mynd í bíó...svona mynd sem maður vill ekki að endi!

En kíkið á myndirnar og skemmtið ykkur vel um helgina ;)

þriðjudagur, ágúst 17, 2004

Strákarnir voru nú ekki alveg að nenna að elda í gær þannig að við fengum "heimatilbúna pizzu" Teddi sótti hana alveg sjálfur! hehehe!
En kvöldið var alveg æðislegt, góð pizza, góðar myndir og mikið spjall. Um eitt leitið um nóttina þá varð ég nú samt að koma mér heim þar sem ég átti eftir að skúra í Hveragerði....þannig að núna er ég alveg rosalega þreytt.... Verð að losna við þreytuna samt þar sem maður er að fara fínt út að borða í kvöld...svona kveðju dinner fyrir Lilju.

mánudagur, ágúst 16, 2004

Jæja...ég er á lífi!

Ég var sprautuð niður og sett í öndunartæki...vá hvað það var gott að getað andað aftur!
Söngurinn gékk svo bara vel...það var að vísu orðið ógeðslega heitt í kirkjunni þegar ég byrjaði að syngja og ég orðin upp þornuð...en það gékk nú samt...en ég verð að segja að þetta var alltof löng dagskrá...fólk var farið að læðast út í restina...þar á meðal ég...ég bara gat ekki verið þarna inni lengur...ég meina...sitja yfir upplestri í tvo tíma...eða meira...djíses...það er bara ekki hægt! og ekki í þessum hita!

Svo vil ég bara segja....Svava og Sigga...Skemmtið ykkur æðislega í Frakklandinu
og ef þið farið í monoprix og finnið gratínsósu sem heitir "Sauce Béchamel emmental, tomate et basilic" þá megiði alveg koma með eina svoleiðis handa mér ;) hehehe
En have fun!

Í kvöld er það kvöldverður og hryllingskvöld hjá Tedda og Henrý...alltaf gaman að svoleiðis...fáum heimatilbúinn mat og allt...
Thanx guys!!!

Svo fer ég í uppskurð á miðvikudaginn....ekkert stór skurður en samt... verið að taka hnúðinn sem er búinn að vera á maganum mínum í mörg ár!

Have a nice day!

föstudagur, ágúst 13, 2004

Það er ótrúlegt hvað maður getur verið ónýtur...ég meina...ég er gallað eintak, það á bara að henda mér á ruslahaugana!

Ég er búin að vera með stanslaust astmakast í þrjá daga! Skiptir engu þótt ég noti þetta ljóta astmalyf...það virkar ekki neitt...svo næ ég ekki í lækninn...hann er bara við á föstudögum og hann verður að hringja í mig, sem þýðir að ég þarf bara að gjöra svo vel og bíða og vera að drepast á meðan....ég skelf öll eins og hrísla og get ekki andað....svo á ég að syngja í kirkjunni á morgun...já einmitt...ég sé það svo mikið gerast...söngvarar þurfa að vera með góð lungu og góðan andadrátt....ekki gott að reyna að syngja í miðju astmakasti! En sjáum nú samt til....kannski gerast kraftaverk...það er þessi ógeðslegi hiti...ég er ekki gerð fyrir mikinn hita, það er alveg á hreinu!

Jæja...ég er að fara til læknis á eftir (ekki astmalæknis) ég er bara einn stór spítalamatur...alveg ótrúlegt!

Have a nice day og njótið þess að geta andað!!!!!!

miðvikudagur, ágúst 11, 2004

Ef þið heyrið ekkert frá mér í nokkra daga þá ligg ég einhverstaðar í yfirliði með sólsting!

Ég er ekki viss um að ég meiki þetta...jesús kristur og allt hans lið

PINK var GEGGJUÐ
Ég er að segja ykkur það, það var ekkert smá gaman, Öll öskrin og djí!
Pink er ekkert smá mikill töffari og svo er hún svo afskaplega kurteis líka. Ekki má gleyma því að hann Jónsi var þarna líka og GUÐ MINN GÓÐUR hvað hann er flottur, ég veit ekki hvert slefið ætlaði að fara....namm....

Pink rules!

þriðjudagur, ágúst 10, 2004

Það ætti að vera lögbrot að láta mann vinna í svona veðri! Aldrei hefur mér verið svona heitt...ég funkera ekki í þessum hita...minn litli líkami slekkur bara á sér..og virkar einfalldlega ekki....mig langar bara að skríða ofan í frystikistu.

jæja, ég ætla að halda áfram að deyja hérna!

PINK
þá er komið að því...fer á Pink tónleika í kvöld....það verður geggjað..hlakka ýkt mikið til!

Svo eru bara allir að yfirgefa landið!

Helga mín...gangi þér æðislega vel í útlandinu...ég veit að þú átt eftir að blómstra í Norska landinu *****knús og kossar frá mér*****

Svo er það hún Lilja mín
I´ll miss you so much

mánudagur, ágúst 09, 2004

Ný vika enn á ný!

Helgin var fín...ég og Valdi bróðir minn skelltum okkur á gay pride...bara rosa skemmtilegt...leið samt svolítið eins og ég væri í fjölbraut þar sem ég var umkringd af sunnlendingum...maður sér margt af þessu fólki kannski einu sinni á ári og svo sér maður alla á sama stað...ég meina 40 þús. manns og sunnlendingarnir safnast allir saman á sama punktinum...bara fyndið!

Eftir allt húllumhæið í miðbænum þá skelltum við okkur í bíó með Lilju. Sáum The Village...verð að segja að þetta er snilldar mynd...ég veit ekki um aðra en ég segji að þessi maður er snillingur...það voru margir eflaust drullu fúlir og fannst þessi mynd leiðinleg en ekki ég...ég er ýkt að fíla þennan mann.

Nú er ég búin að panta mér seríu tvö af Roswell...jeiiiii!

fimmtudagur, ágúst 05, 2004

Já, það er óhætt að segja að eyjar klikka ekki...þrátt fyrir það að ég ældi alla leiðina út og leið ekki vel heim þá var þetta geggjuð ferð...gott veður og allt...smá skúrir hér og þar en ekkert sem pirraði mann! En ég get alveg sagt það að ég ætla ALDREI að stíga fæti í þennan ljóta herjóf aftur...helv*** ógeð.

Svo var ég send heim úr vinnunni í gær...var orðin fárveik...með hálsbólgu, hausverk og þrýsting í öllu andlitinu...ekki gott...en ég svaf næstum allan daginn og núna líður mér mun betur, svolítið nefmælt en það er svosem í lagi!

jæja, back to work