Lífið er!

Eða hvað!!!!

þriðjudagur, október 26, 2004

Hádí dúdí!

Been a long time!
Allt fínt svo sem að frétta héðan....skólinn gengur sinn vanagang, er að fara í próf næsta föstudag og svo eru bara tvær vikur í jólapróf...djíses kræst segi ég nú bara! Ég fór með Gulla í bíó um daginn...fórum á the gathering, og hún var bara alls ekki svo slæm....ég segi nú samt að ef einhver ætlar á þess mynd og vonast eftir hryllings mynd þá er þetta alls ekki svoleiðis mynd...hún er frekar spookie...alveg fín mynd! ;) Svo ætla ég á forgotten á morgun....engar áhyggjur Lilja, ég fékk ókeypis miða,

Takk Lilja mín fyrir spjallið...þú ert bestust eins og alltaf ;)

Hvernig er það...vita allir hvað þeir eru að gera? Ég meina, efist þið aldrei um það sem þið eruð að gera, er fólk kannski bara að gera það sem það dettur inn í...á maður kannski að gera eitthvað allt annað...hvernig veit maður hvort maður hefur áhuga á einhverju...það er kannski vitlaus spurning, en samt getur þetta vafist fyrir mér, hef ég virkilegan áhuga á einhverju eða er ég bara að þykjast því ég veit ekki um neitt annað sem gæti virkað eða er ég bara endanlega að missa vitið...það yrði svo sem ekkert nýtt....Stundum finnst mér eins og ég sé afar tilgangslaus mannvera, allavega mjög áhugalaus...eru ekki flestir með svona "plan B"? Ég bara spyr!

ohh nú er komið nóg að svona kjaftæði!

Ég er farin í bað og reyna að slökkva á heilanum í smá stund...ramjo ho rengje kjo... eða eitthvað svoleiðis

föstudagur, október 22, 2004

Setti inn fleiri myndir af lopapeysum ef einhver hefur áhuga ;)

fimmtudagur, október 14, 2004

Ég er búin að setja inn myndir af lopapeysum, ef einhver hefur áhuga endilega hafið samband :)

En nú er mál með vexti að fara að borða morgun mat og koma mér í skólann...ohhh hvað ég er ekki að nenna þessu...en verð að slá mig og halda áfram!

Svo eru smá góðar fréttir af húsnæðismálum...ekki meira um það fyrr en ég er búin að hugsa mikið!

þriðjudagur, október 12, 2004

Ef þið viljið eignast flottar handunnar lopapeysur þá látið mig endilega vita...ég er með nokkrar peysur sem ég mundi endilega vilja seljga...alveg nýjar og nýgerðar! Lilja mín, veistu ekki um einhverja þarna úti sem mundu vilja kaupa íslenska lopapeysu?

Jæja þá er ég búin að fá úr fyrstu prófum annarinnar og ég stend alveg á gati! ég fékk 8,3 í Tónheyrn (mér gékk ekki vel) fékk svo 9 í kontrapunkti og 8.5 í Tónlistarsögunni sem nota bene ég hélt að ég myndi falla á...þaðnnig að ég er bara sátt með þessa byrjun.

mánudagur, október 11, 2004

Jæja þá er ég komin heim frá Ísafirði...þetta var nú bara ágætis ferð, þó að það hafi verið brjálað að gera. Maður vaknaði klukkan sjö á morgnanna og skrið svo upp í rúm seint og um síðir alveg að drepast úr þreytu eftir daginn.
Afmælið mitt var nú alveg ágætt...byrjaði ekki vel...ég hélt að allir heima væru búnir að gleyma mér...en svo lagaðist dagurinn og endaði með að það var sunginn afmælis söngurinn á tónleikunum og svo var hörku partý um kvöldið (ég ætla ekki að fara út í þá sálma).

Lilja mín....takk æðislega fyrir gjöfina, hún var ýkt sæt ;)

Ég er búin að fá út úr tveimur prófum, fékk 9 í einu og 8 í hinu...bara alveg ágætt..þá á ég bara eftir að fá eina einkunn...krissleggja fingur ;)

Ekki meira í bili....kíkið endilega á myndirnar

luv ya