Lífið er!

Eða hvað!!!!

föstudagur, apríl 30, 2004

Pakka, pakka, pakka.....

Mikið rosalega er leiðinlegt að pakka....svo á maður miklu meira af dóti heldur en maður hélt....ég sver það, það bætist við dót alltaf þegar ég sný mér við....en ég er nú samt langt komin! Svo er það bara að flytja heim á sunnudaginn...það verður gott að geta haft allt dótið mitt á sama stað...ekki smá hér annað þar og ég veit ekki hvað og hvað!

En síðasta prófið mitt er á morgun...ætli ég verði ekki að taka smá pásu á pakkningunum og læra svolítið..þýðir lítið að koma ólærð í próf....ekki það að það er nú lítið hægt að læra fyrir þetta próf...en jæja...maður reynir sitt besta.

Ætla svo að heimsækja Krapa og Bjart á morgun (það eru nýju hestarnir okkar) Tinna og Tombi eru farin aftur heim til sín og foreldrarnir keyptu tvo aðra hesta....voða flottir!

ég ætla að halda áfram að púla hérna...hafið góða helgi og farið ykkur ekki að voða!

miðvikudagur, apríl 28, 2004

Jæja...þá byrja prófin í dag....ohhh...mikið er leiðinlegt að þurfa að fara í próf...en well...bara lifa út þessa viku og svo er ég búin...

er byrjuð að pakka niður...ætla að flytja til Hveragerðis aftur á sunnudaginn...best að klára þetta bara strax, ágætt að sleppa við að borga leigu í mai...reyndar ætlar Dóri að flytja líka núna um helgina svo íbúðin hér er bara að tæmast.

Sígaunabaróninn gékk bara rosa vel...óheppin þið sem misstuð af því...ég er að vísu búin að ofbjóða röddinni minni, en það lagast...er ekki enn búin að fá að vita hvað ég fékk úr stigsprófinu...orðin alveg rosa forvitin.

sunnudagur, apríl 25, 2004

Ein sýning eftir...þið sem eigið eftir að mæta verðið að koma í kvöld í íslensku óperuna...húsið opnar klukkan hálf átta og það er frítt inn!!!!

Jæja þá er þetta að verða búið...eftir næstu viku verð ég komin í frí...enginn meiri skóli...allavega í bili!

föstudagur, apríl 23, 2004

Þá er föstudagurinn runninn upp....ég er enn kvefuð en ég skellti mér nú bara samt í stigspróf...og mér gékk nú bara ágætlega...gott að það er búið, því þá get ég loks sungið af öllum lífs og sálar kröftum á sýningunni í kvöld....og munið að mæta!!!!!

Fór á Indókína með Lilju minni í gær og ég verð að segja að maturinn þar er bara geðveikur....átum á okkur gat og sátum svo bara í rólegheitum í meira en klukkutíma...alltaf gott að fara út að borða og vera ekki að flýta sér....

Próf í næstu viku...og svo búin....ohhh, það verður æðislegt...verð örugglega alveg ómöguleg að hafa allt í einu ekkert að gera...en það verður gott að fá smá frí og gera ekkert!

Fjölskyldan er búin að kaupa hest...þannig að nú ekkert aftur snúið með hestasportið...það er nú líka bara gaman...ótrúlegt hvað það getur verið gaman að sitja á hesti og hossast út um allt.

miðvikudagur, apríl 21, 2004

já, nei þetta er ekki að gera sig...bara alls ekki....get bara ekki sagt annað.....nei, nei og aftur nei...gengur ekki upp!

Miðvikudagur og það er FRÍ...það er að segja...engin sígaunabaróns æfing...en aftur á móti þarf ég að vera í skólanum alveg til hálf sjö í kvöld!
á morgun fimmtudag er generalprufan...og nota bene ykkur er velkomið að mæta á hana ( klukkan 14.00 í íslensku óperunni), ætlum að reyna að fá stöð tvö og rúv til að mæta og fjalla aðeins um okkur!
Var að syngja á tónleikum í norræna húsinu á manudaginn og það gékk bara alveg rosalega vel...en svo fékk ég náttúrulega í hálsinn daginn eftir þannig að ég er á fullu að ÞEGJA OG EKKERT SEGJA til að röddin lagist nú fyrir föstudag...annars er ég í djúpum skít!

Var að pæla í því að skreppa á timeline í kvöld...alltaf gaman að vera boðin í bíó svona öðru hvoru....

Have a nice day.

mánudagur, apríl 19, 2004

þá er mánudagur runninn upp...og alltaf er jafn mikið að gera hjá mér...ég held að ég sé að fá hálsbólgu...sem er náttúrulega bannað því ég þarf að syngja svo mikið næstu daga...í kvöld í norræna húsinu og svo föstud. laugard og sunnudag í sígaunabaróninum og svo stigsprófið sem er á föstudaginn...svo allar æfingar alla þessa vikuna...þannig að þetta er bannað...

ég komst loks að því hvort væri verið að reyna við mig eða ekki....það er alltaf gott að vita!

Segi ekki meira í bili....vonandi fæ ég bráðum orku til að skrifa meira en nokkrar línur

have fun today!

föstudagur, apríl 16, 2004

Þá er komin helgi...en auðvitað fæ ég ekkert helgarfrí! Tónleikar á morgun meðal annars

Svo er það bara að mæta á Sígaunabaróninn 23. apríl...klukkan 20.00 í Íslensku óperunni og það er frítt inn!!!!!

miðvikudagur, apríl 14, 2004

Jæja...þá eru páskarnir búnir og skólinn heldur áfram...ég hafði það bara ágætt um páskana, fór til Eskifjarðar í fermingu...þvílk keyrsla...níu tímar hvora leið..og svo var farið í sumarbústaðinn á páskadag...borðaði allt of mikið af súkkulaði...var komin með craving í ristað brauð með salami...hehehe...en nú verður alveg brjálað að gera hjá mér! Það verða tónleikar í skólanum næsta laugardag svo á ég að syngja í norræna húsinu á mánudag, svo er það stigsprófið í næstu viku og frumsýningin á sígaunabaróninum, á sama degi...svo það er nóg að gera hjá mér þessa dagana....

já og by the way þá komst ég inn í Listaháskólann...sem ég persónulega skil ekki...þar sem þetta ljóta fólk var búið að segja að þeim leist ekkert á mig....og ég var búin að sætta mig við að fara ekki...meira segja veit ekki alveg núna hvort ég vilji fara í þennan skóla....svo þarf ég að svara þeim fyrir laugardaginn, svo ég verð að fara að ákveða mig. Æ maður, ég veit ekkert hvað ég á að gera!

mánudagur, apríl 05, 2004

Það var rosa fjör á sígaunabaróns æfingu í kvöld...mjög erfið og löng...en svaka fjör...En satt best að segja þá er ég farin að efast um marga hluti...afhverju geta hlutirnir ekki verið auðveldir og einfaldir...ohhh...kannski á maður bara að hætta að hugsa!!!!

Enn ein helgin liðin...átti að vera komin í páskafrí síðasta laugardag...en útaf Sígaunabaróninum þá fer ég ekki í frí fyrr en á miðvikudag....aldrei á ævinni hef ég verið svona upptekin...æfingar öll kvöld frá sjö til miðnættis. fékk þó föstud. og laugard. frí...naut þess að vera í Hveragerði...fór á hestbak....og vitiði hvað...litli bróðir minn er orðinn jafn stór og ég...hann nennti ekki á bak þannig að ég fékk lánaðar reiðbuxurnar og úlpuna hans...viljiði pæli...ég passa í föt af litla bróður mínum....en svo er hann að stækka....Þannig að bráðum verður allt of stórt á mig af honum....en það góða er að ég fæ að eiga reiðbuxurnar þegar hann er orðinn of stór í þær! Ég fór í prufu fyrir Hárið í gærmorgun...ekkert búið að hringja í mig ennþá....sem þýðir að ég fæ ekki að vera með....en það var bara gaman að standa upp á sviði og syngja fyrir Rúnar, Selmu og Þorvald...Fyrsta skiptið sem ég geri svona lagað og á örugglega eftir að gera það aftur...bara gaman að prófa...það voru líka alveg fullt af fólki sem var að syngja þarna....þar á meðal allt Idol gengið eins og það leggur sig!

En nú eru að koma páskar....verður voða gaman að vera í faðmi fjölskyldunnar og borða páskaegg.

En getið þið sagt mér eitt....hvenær er verið að reyna við ykkur og hvenær er fólk bara að vera vingjarnlegt!?Ef einhver gefur ykkur athygli...alltaf að tala við ykkur án þess að þið þekkist neitt voða mikið...segir öðru hverju hvað þið eruð sætar og horfir til ykkar mjög oft....er þá verið að reyna við ykkur eða ekki? please tell me!!!

laugardagur, apríl 03, 2004

Nýjar myndir, nýjar myndir
Allir að skoða!!!!