Rigning og aftur rigningMikið rosalega rigndi í gær...jahérna, en við fengum nú ekki þetta brjálaða veður í Hveró, voða stillt en geggjuð rigning!
Þetta var nú bara alveg ágætis helgi, við fjölskyldan kíktum á gay pride....voða fínt veður og frábær skrúðganga, mér finnst voða gaman að þessu, svo fór sunnudagurinn bara í það að liggja undir sæng og horfa á endalausa þætti.
Núna eru tvær vikur þangað til að ég fer út til Krítar, ohhh hlakka svo til að komast aðeins í burtu, bara hiti, sjór, gott fólk og slökun.
Fer aftur til hjartalæknisins á föstudaginn, spurning hvað kemur úr því.
Oft hugsa ég alltof mikið, Oft verið að pæla hvort maður eigi ekki að njóta lífsins, ég meina, ekki endalaust að neita sér um það sem gerir lífið gott og þess virði að lifa því, alltof margir lifa þannig lífi að það er alveg búið að rýja alla ánægju í burtu, og til hvers þá að lifa..á lífið kannski ekki að vera skemmtilegt, bara vinna, þreyta, stress og leiðindi...stundum heldur maður það...það er ekki hægt að lifa án peninga þannig að fólk vinnur eins og motherf**** til þess að eiga pening en svo tímir sá hinn sami ekki að eyða neinu af því...hver var þá tilgangurinn...
Ég þarf að hlusta meira á pílu pínu...líkar vel við hennar hugsunarhátt
Etið og verið glöð, dansið og verið glöð, syngið og verið glöð